J.T. Foxx stendur fyrir heilsdags námskeiði í apríllok – Snillingur eða svikahrappur?
Þann 28. apríl næstkomandi fer viðburðurinn Mega Speaker Reykjavík fram á ótilgreindum stað í Reykjavík. Þar mun bandaríski markaðsmaðurinn J.T. Foxx freista þess að kenna Íslendingum ýmis ráð til þess að verða ríkir. Foxx kynnir sig sem helsta „ríkidæmisþjálfa“ (e. Wealth Coach) heims en á sérstakri heimasíðu viðburðarins má lesa um helstu viðfangsefni Foxx á námskeiðinu. Til dæmis má nefna „Hvernig eigi að hafa atvinnu sína af fyrirlestrum (fyrir 500 þúsund–2,5 milljónir hvert verkefni)“, „Hvernig eigi að verða metsöluhöfundur á Amazon“ og ekki síst „Hvernig eigi að spjalla við fræga einstaklinga eins og Al Pacino, Sylvester Stallone, Schwarzenegger og Zuckerberg.“
Viðburðurinn er auglýstur grimmt á Facebook þessa dagana og þar hlekkjað í áðurnefnda heimasíðu viðburðarins. Þar má lesa ýmsa lofgjörð um kappann sem heitir réttu nafni Justin Gorenko og er rúmlega þrítugur að aldri. Hann er fæddur í Kanada en flutti til Bandaríkjanna þar sem hann breytti nafni sínu í J.T. Foxx. Að eigin sögn haslaði hann sér völl sem fasteignasali í Flórída áður en hann fór að hafa lifibrauð af því að kenna öðrum að efnast.
Á heimasíðu viðburðarins segir orðrétt: „Ástæðan fyrir því að ég er að halda þetta eins dags námskeið er að ég veit hversu miklir möguleikar felast í Reykvíkingum. Ég er að koma til Reykjavíkur til þess að ausa úr viskubrunni mínum varðandi markaðsmál og ætla að finna næsta stjörnuræðumann, markþjálfara og rithöfund. Vittu til, það gæti verið þú!“
Engin staðsetning er tilgreind en fram kemur að hún verði send með tölvupósti til þeirra sem skrá sig. Blaðamaður prófaði að skrá sig til leiks og fékk staðfestingu þess efnis í tölvupóstfangið. Í því kom fram að nákvæm staðsetning yrði gefin upp síðar.
Óhætt er að segja að námskeið J.T. Foxx séu umdeild í meira lagi. Ef leitað er að nafni hans á leitarvélinni Google þá kemur upp ógrynni af síðum þar sem hann er ýmist lofaður í hástert eða fullyrt að hann sé fullkominn svikahrappur. Fjölmargar síður eru síðan á hans eigin vegum þar sem því er haldið fram að samkeppnisaðilar hans og óvildarmenn séu að reyna að koma á hann höggi með því að dreifa óhróðri um hann.
Það sem vekur ekki síst athygli við J.T. Foxx eru tengsl hans við fræga einstaklinga og segja má að það veiti honum trúverðugleika. Á heimasíðu viðburðarins má sjá myndir af honum með stjörnum eins og áðurnefndum Al Pacino, Sylvester Stallone, Arnold Schwarzenegger, John Travolta, 50 Cent, Richard Branson og síðast en ekki síst Vanilla Ice. Þá má sjá myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem áðurnefndar stjörnur eru gestir á fyrirlestrum Foxx og tala hlýlega um hann. Úrtölumenn segja að Foxx greiði stjörnunum fyrir heimsóknirnar og engin vinskapur sé þeirra á milli.
Þá vekur það vissulega upp grunsemdir að „heimsþekktur“ fyrirlesari eins og J.T. Foxx skuli ekki fá neina fjölmiðlaumfjöllun sem heitið getur. Hann fullyrðir að Forbes og BBC hafi fjallað um sig en ekkert er að finna um það þegar leitað er á netinu. Þá birtir hann mynd af sér á forsíðum tveggja tímarita sem gefin eru út í Suður-Afríku.
Hægt er að finna talsvert af misáreiðanlegri gagnrýni á námskeið og fyrirlestra J.T. Foxx þegar leitað er á netinu. Einn þátttakandi á námskeiði í París, sem er sambærilegt við það sem haldið verður í Reykjavík, skrifaði nýlega pistil um reynslu sína .
Þar kom fram að dagurinn hefði hafist á því að aðstoðarmaður Foxx hefði hitað salinn upp í rúma klukkustund og þá aðallega greint frá afrekum Foxx í viðskiptalífinu. Meðal annars sagði hann að Foxx væri eigandi 50 fyrirtækja án þess að tilgreina nöfn þeirra sérstaklega. Foxx hefði síðan sjálfur stigið á svið og að mestu leyti fjallað um eigin auðæfi og samskipti sín við ríkt og frægt fólk. Síðan var boðað til hádegishlés en þá fengu þátttakendur tilboð um að kaupa geisladiskasett, 15 diska í setti, með ítarlegum ráðleggingum Foxx um hvernig ætti að efnast. Að sjálfsögðu var um sérstakt tilboð að ræða en nokkrir valmöguleikar voru í boði sem kostuðu frá tæplega 30 þúsund krónum og upp í 150 þúsund krónur.
Eftir hlé hélt sama lofrullan áfram en þá var tilkynnt að tuttugu álitlegir þátttakendur yrðu valdir úr salnum til þess að gangast undir frekari þjálfun. Aftur voru nokkrir valkostir í boði, fyrir „hina heppnu“, sem að sjálfsögðu kostuðu dágóðan skildinginn. Sá dýrasti kostaði rúmlega fimm milljónir króna en þá var um þriggja daga námskeið að ræða og fengju þátttakendur að hitta goðsögnina Al Pacino í stutta stund.
Ódýrasti valkosturinn kostaði um 120 þúsund krónur en það gaf viðkomandi rétt til þess að sækja tveggja daga námskeið á vegum J.T. Foxx einhvers staðar í heiminum einhvern tímann á næstu tíu árum. Flug, gisting og uppihald ekki innifalið.
Að lokum lýsir þátttakandinn miklum vonbrigðum sínum með að Foxx forðaðist augnsamband við þátttakendur auk þess sem hann talaði vélrænt og öll uppsetningin virkaði gervileg. Þá var tæknileg úrvinnsla ekki upp á marga fiska því tölvubúnaðurinn gaf sig ítrekað.