fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Seljahlíð: „Skapa óvissu og ótta meðal íbúa“

Borgarfulltrúi segir að sala Seljahlíðar hafi verið„ bókhaldsbrella“

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 24. mars 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er allt afskaplega loðið og við fáum mismunandi svör úr öllum áttum. Félagsbústaðir segjast ætla að fara í endurbætur á íbúðunum en úr annarri átt heyrum við að koma eigi fyrir helluborðum í íbúðunum og þá sé málið leyst. Þessi vinnubrögð geta ekki verið eðlileg og þau skapa óvissu og ótta meðal íbúa og aðstandenda,“ segir baráttukonan Ingibjörg S. Finnbogadóttir, íbúi í Seljahlíð, í samtali við DV.

Blöskraði vinnubrögðin

Eins og DV hefur fjallað ítarlega um þá keyptu Félagsbústaðir hf. þjónustuíbúðirnar í Seljahlíð af Reykjavíkurborg um áramótin. Málinu var hraðað í gegnum borgarstjórn og ekki var hlustað á úrtöluraddir minnihlutans sem vildu fresta málinu fram yfir áramót og fara vandlega yfir alla þætti þess án þess að vera undir tímapressu. „Fulltrúar meirihlutans sögðu þá að slík frestun kæmi ekki til greina því þeir ætluðu sér að samþykkja yfirfærslu þessara eigna fyrir áramót og gerðu þeir það á síðasta borgarstjórnarfundi ársins, 20. desember. Við Sjálfstæðismenn studdum ekki málið heldur sátum hjá við afgreiðslu þess þar sem okkur blöskraði þessi vinnubrögð,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Segir óásættanlegt að íbúar í Seljahlíð séu engu nær varðandi hugsanlegar endurbætur á íbúðum þeirra þegar vika er í að leigusamningum allra verður sagt upp.
Ingibjörg S. Finnbogadóttir Segir óásættanlegt að íbúar í Seljahlíð séu engu nær varðandi hugsanlegar endurbætur á íbúðum þeirra þegar vika er í að leigusamningum allra verður sagt upp.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Eykur á skuldsetningu

Að hans mati var tilgangurinn sá að fá fram fjárhagsleg áhrif ákvörðunarinnar fyrir áramót. „Ætlunin var að mynda hagnað hjá borgarsjóði vegna sölu eignanna til B-hluta fyrirtækis. Félagsbústaðir munu hins vegar fjármagna kaupin með lántöku og því mun hagur Reykjavíkurborgar í heild ekki batna með þessum bókhaldsbrögðum. Skuldir samstæðunnar munu aukast. Eins og áður segir þá var tilgangurinn að bæta slæma stöðu borgarsjóðs fyrir áramót en flýtirinn var svo mikill og vinnubrögðin svo óvönduð að ég er ekki einu sinni viss um að það takist,“ segir Kjartan.

Fullyrt að áhrifin yrðu engin

Minnihlutinn í borgarstjórn lagði fram fyrirspurn til skrifstofu borgarstjóra áður en salan gekk í gegn þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort og þá hvaða breytingar umrædd eignasala kynni að hafa í för með sér fyrir íbúa Seljahlíðar. Svarið barst þann 28. febrúar 2017 og þá kom fram að velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafi hingað til „niðurgreitt leigu hjá hluta hópsins en eftir breytingarnar á lögum um húsnæðisbætur sem tóku gildi um síðustu áramót öðluðust íbúar í umræddum búsetuúrræðum rétt á að sækja um sérstakan húsnæðisstuðning til Reykjavíkurborgar. Þar sem ekki er um leigusamninga að ræða eins og í skammtímavistunum og vistheimilum barna er einungis um eignarhaldsskipti að ræða sem hefur engin áhrif á þá sem nýta sér úrræðin,“ segir í svarinu.

Íbúar þurftu að hafa vit fyrir Félagsbústöðum

Eins og DV greindi frá í síðustu viku þá standast þær fullyrðingar enga skoðun. Staða íbúanna í Seljahlíð er allt önnur eftir gjörninginn. Félagsbústaðir ákváðu að segja upp leigusamningum íbúanna í Seljahlíð frá og með 1. apríl og eftir tólf mánaða uppsagnarfrest mun leigan hækka um 80–125%. Það var gert í þeirri trú að húsaleigubætur kæmu á móti hækkuninni. Ingibjörg benti hins vegar á að samkvæmt lögum þá uppfylltu íbúðirnar ekki skilyrði í lögum um húsnæðisbætur út af því að séreldunaraðstaða er ekki til staðar í íbúðunum. Það virtist koma starfsmönnum Félagsbústaða í opna skjöldu og brást fyrirtækið við með því að senda út fréttatilkynningu vegna málsins.

Segja leiguna lága

Þar kom fram að ráðist verði í endurbætur á húsnæðinu og að íbúðirnar verði útbúnar þannig að þær uppfylli skilyrði húsnæðisbóta. Þær endurbætur eiga ekki að hafa áhrif á ákvörðun leiguverðs. „Núverandi húsaleiga í Seljahlíð er afar lág og mun lægri en í öðrum þjónustuíbúðum á vegum Félagsbústaða, eða um kr. 31 þúsund á mánuði með hita og rafmagni. Húsaleiga í öðrum sambærilegum þjónustuíbúðum í eigu Félagsbústaða er á bilinu kr. 63–76 þúsund á mánuði án hita og rafmagns, en þær eru misjafnar að stærð,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að húsaleiga í Seljahlíð verði að meðaltali 72 þúsund krónur á mánuði fyrir einstaklingsíbúð. „Uppfylli íbúi tekju- og eignaviðmið til að fá húsnæðisbætur greiðir hann, að teknu tilliti til þeirra, 43 þúsund krónur á mánuði í húsaleigu miðað við gildandi bótakerfi,“ segir enn fremur.

Aldraðir íbúar í þjónustuíbúðunum eru afar ósáttir við vinnubrögð Félagsbústaða og Reykjavíkurborgar.
Seljahlíð Aldraðir íbúar í þjónustuíbúðunum eru afar ósáttir við vinnubrögð Félagsbústaða og Reykjavíkurborgar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Loðnar útskýringar og eignaupptaka

„Þeir vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga varðandi þetta mál og það er óásættanlegt að lesa einhverjar loðnar útskýringar í dagblöðum um einhverjar endurbætur sem aldrei hafa verið kynntar eða útskýrðar með neinum hætti. Íbúar í Seljahlíð hafa ekki hugmynd um hvernig Félagsbústaðir ætla að útfæra þetta mál þegar vika er í að fyrirtækið segi upp leigusamningum allra íbúa,“ segir Ingibjörg.

Þá ítrekar hún þá skoðun sína að um eignaupptöku hjá hinu opinbera sé að ræða. „Það eru margir sem dveljast hér sem eiga smá varasjóð eftir að hafa selt fasteignirnar sínar. Þessir aurar munu gera það að verkum að þessir íbúar fá ekki húsaleigubætur. Borgaryfirvöld eru með þessum aðgerðum að seilast í þessa sjóði. Ég er viss um að flestir íbúar hér kjósa frekar að nota þá peninga í að gera vel við sig og afkomendur sína á meðan heilsan leyfir. Þessi framkoma við aldraða íbúa borgarinnar er til skammar,“ segir Ingibjörg ákveðin.

DV hefur ítrekað óskað eftir nánari upplýsingum frá Félagsbústöðum hf. varðandi málið en engin svör fengið nema fréttatilkynninguna sem send var á alla fjölmiðla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Tímamót á Reykjanesskaga: Næst lengsta gosið frá 2021 – Óvissa um framhaldið

Tímamót á Reykjanesskaga: Næst lengsta gosið frá 2021 – Óvissa um framhaldið
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“
Fréttir
Í gær

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið
Fréttir
Í gær

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí