Hafa áhyggjur af opinberri umræðu Más um einstök mál
Bankaráð Seðlabanka Íslands hefur krafist þess að Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, láti af umræðu um málarekstur bankans gegn Samherja. Þetta kemur fram í bókun sem var samþykkt af bankaráði, í kjölfar umræðu á fyrri fundum, þar sem framganga Más í fjölmiðlum var til umræðu.
Hafði Már lengi vel á undan rætt opinberlega um málareksturinn gegn Samherja.
Morgunblaðið hefur bókunina undir höndum. Þar segir að bankaráð Seðlabanka Íslands ítreki áhyggjur sínar af opinberri umræðu seðlabankastjóra um einstök mál sem bankinn er með í vinnslu. Þá segir í bókuninni að að bankaráðið krefjist þess að seðlabankastjóri láti nú þegar af slíkri umræðu. Bókunin var gerð í mars 2016, þremur dögum eftir að Már mætti í viðtal í sjónvarpsþættinum Eyjunni
Í viðtalinu sagði Már meðal annars að gera þyrftu gagngerar breytingar á rannsókn efnahagsbrotamála á Íslandi og ræddi hann framgöngu gjaldeyriseftirlits Seðlabankans og yfir-manns þess í málum tengdum rannsóknum þess, meðal annars gegn Samherja.