fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Therese er horfin: Lögreglan telur að henni hafi verið rænt

Engar vísbendingar hafa borist í málinu

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 22. mars 2017 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 13. mars síðastliðinn tilkynntu ættingjar Therese Palmkvist, sem er búsett í bænum Långshytten í Dalarna, í Svíðþjóð, að hún væri horfin. Lögreglunni grunar að henni hafi verið rænt. Engar nýjar vísbendingar hafa borist lögreglu í málinu frá því að greint var frá hvarfi Therese.

Lögreglan engu nær

Þá er talið að töluvert lengra sé síðan Therese, sem er 31 árs, hvarf þó svo að ættingjar hennar hafi ekki tilkynnt það formlega fyrr en nú.

Fjallað er um málið í Aftonbladet. Þar segir að samkvæmt smærri fjölmiðlum í Långshytten þar sem Therese býr hafi ekkert spurst til hennar í marga mánuði.

Biðja almenning um að hafa augun opin

Þrátt fyrir víðtæka leit síðan tilkynningin barst hefur lögreglan enga hugmynd um hvar Therese er niðurkomin.

Þá kemur fram að lögreglan telji grun leika á því að Therese hafi verið rænt. Sænska lögreglan biðlar nú til almennings og vonast til þess að einhver búi yfir upplýsingum sem gætu varpað ljósi á þetta dularfulla mannshvarf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“