Svala Björgvinsdóttur verður fulltrúi Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kænugarði þann 9. maí en lag hennar Paper sigraði lagið Is This Love eftir Daða Frey Péturson í einvígi eftir að lögin urðu stigahæst í fyrri símakosningunni. Lag Svölu varð einnig stigahæst hjá dómnefndinni.
Svölu hafði verið spáð sigri en hún sagði að það hefði ekki verið erfitt að standast væntingarnar og stíga á svið í keppninni.
„Ég elska að syngja fyrir mitt fólk,“ sagði Svala ánægð með sigurinn. Um leið sagðist hún vilja gefa öllum sem stigið hafa á svið í undankeppninni gott klapp og sagði að Íslendingar gætu verið stoltir af sínu tónlistarfólki.