„Allar fjórar stóru eldstöðvar okkar eru í einhverju ferli að undirbúa næstu gos. Katla, Hekla, Grímsvötn og Bárðarbunga sem eru langafkastamestu eldstöðvarnar.“ Þetta hefur Morgunblaðið eftir Páli Einarssyni jarðeðlisfræðingi. Hann segir að skjálftavirkni í Kötlu hafi ekki verið meiri í fjóra áratugi.
Haft er eftir honum að ferðamenn séu í mestri hættu í námunda Kötlu. „„Það er óvenjulegt ástand að það skuli vera túristar hér um miðjan vetur, en Katla er eina eldstöðin sem beinlínis skapar hættu að ég held. Það eru vinsælir staðir í næsta nágrenni, aðallega við Sólheimajökul.“