Strætisvagnar hafa verið yfirfullir í morgun vegna þeirrar ófærðar sem er nú á höfuðborgarsvæðinu. Margir virðist ekki hafa verið búnir að losa bíla sína og ákveðið að reiða sig á almenningssamgöngur í staðinn. „Það er búið að vera brjálað að gera,“ hefur RÚV eftir Sigurjóni Guðnasyni, hjá stjórnstöð Strætó.
Fram kemur að strætisvagnar hafi verið yfirfullir og vagnstjórar hafi því ekki geta tekið upp farþega á sumum biðstöðvum. Og vegna þessa er nokkurra mínútna seinkun á flestum vögnum.