Miklar tafir eru nú á umferð til suðurs á Kringlumýrarbraut/Hafnafjarðarvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Umferðaróhapp varð við Gjána í Kópavogi.
Vegfarendur eru beðnir um að velja aðra leið en tafirnar munu vara í óákveðinn tíma. Þó er búið að opna fyrir umferð.
DV ræddi við vegfaranda við N1. Sá var stopp og hafði tafist um meira en hálftíma, þegar þetta er skrifað. Vegfarandinn hafði fyrir vikið ekki geta sótt börn í leik- og grunnskóla, og var í öngum sínum.