Gengisbreytingar skapa svigrúm til lækkunar
IKEA hefur lækkað verð á öllum húsbúnaði um 10 prósent að jafnaði. Þetta gerir fyrirtækið vegna styrkingar krónunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá IKEA. Fram kemur að þetta sé í annað sinn á þessu rekstrarári (frá 1. september) sem IKEA lækkar vöruverð kerfisbundið. Öll verð séu nú mun lægri en fram kom í síðasta vörulista verslunarinnar, sem gefinn var út í ágúst.
„Aðstæður hafa skapast undanfarin misseri til að lækka vöruverð; stöðugleiki í efnahagsmálum, styrking krónunnar og aukin umsvif, ekki síst vegna gríðarlegrar aukningar á ferðamönnum til landsins. Styrking krónunnar heldur áfram og því hefur verið ákveðið að líta bjartsýnum augum til framtíðar og skila þessari styrkingu án tafar til viðskiptavina. Það er von forsvarsmanna IKEA að verðlækkanir fyrirtækisins hafi jákvæð áhrif á áframhaldandi stöðugleika og kaupmátt landsmanna,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að verð á húsbúnaði hafi ekki hækkað í IKEA frá árinu 2012.