fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

DV fær tvær tilnefningar til blaðamannaverðlauna

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. febrúar 2017 23:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV fær tvær tilnefningar til blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands, fyrir árið 2016. Auður Ösp Guðmundsdóttir er tilnefnd í flokknum viðtal ársins fyrir viðtal við Margréti Fenton en dóttir hennar, Sandra Sigrún, var dæmd til 37 ára fangelsisvistar í Bandaríkjunum.

Hörður Ægisson er tilnefndur í flokki rannsóknarblaðamennsku fyrir umfjöllun um bónusgreiðslur til slitastjórna Kaupþings og ALMC en þær voru greiddar út í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag.

RÚV fær flestar tilnefningar, þrjár talsins. DV og Morgunblaðið fá tvær, Stundin, Kjarninn, Fréttablaðið, Stöð 2 og Reykjavík media fá sína tilnefninguna hvert.

Verðlaunin verða afhent á laugardaginn eftir viku, þann 4. mars.

Hér má sjá allar tilnefningarnar:

Viðtal ársins

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV. Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.

Helgi Seljan, Kastljósi RÚV.
Fyrir viðtal við hjónin Sigrúnu Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni.
Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Hörður Ægisson, sem nú ritstýrir Markaðnum, er tilnefndur í flokki rannsóknarblaðamennsku.

Tilnefndur Hörður Ægisson, sem nú ritstýrir Markaðnum, er tilnefndur í flokki rannsóknarblaðamennsku.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Hörður Ægisson, DV.
Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag.

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV.
Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum.
Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði .

Umfjöllun ársins

Guðrún Hálfdánardóttir, Mbl.is
Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2 Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu
Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV.
Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Reykjavík Media.
Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum.

Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu.
Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis