Aðeins tvö sjúkraflug vegna barnshafandi kvenna – Þyrlan fór í níu flug
Kostnaður vegna sjúkraflugs til og frá Vestmannaeyjum á síðasta ári nam tæpum 29 milljónum króna. Það er um 7 prósent af kostnaði vegna sjúkraflugs á landinu öllu en kostnaður við allt sjúkraflug Mýflugs nam tæpri 391 milljón króna á síðasta ári. Þá nam kostnaður vegna þyrluflugs Landhelgisgæslunnar til Vestmannaeyja rúmri 1,1 milljón króna. Það samsvarar um 13 prósentum kostnaðar við allt flug Gæslunnar á síðasta ári, en kostnaður við það var rúmar 8,6 milljónir króna.
Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra, Óttarrs Proppé, við fyrirspurn Ara Trausta Guðmundssonar, þingmanns Vinstri grænna. Þar kemur einnig fram að sjúkraflug til og frá Vestmannaeyjum voru á síðasta ári 113 talsins hjá Mýflugi og sjúkraflug á vegum Gæslunnar voru 9 talsins.
Ari Trausti spurði sérstaklega um tíðni og kostnað við sjúkraflug barnshafandi kvenna, búsettra í Vestmannaeyjum árið 2016. Í svari ráðherra kemur fram að um var að ræða tvö slík flug og var kostnaður við þau rúm hálf milljón, auk fasts kostnaðar sem greiddur er fyrir vakt flugmanna Mýflugs.
Ari Trausti spurði einnig hvort heilbrigðisráðherra hyggðist gera konum í Vestmannaeyjum kleift að sækja fæðingarþjónustu á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Í svari ráðherra kom fram að í Vestmannaeyjum væri starfrækt svokölluð ljósmæðrastýrð fæðingarþjónusta. Konur með litla fæðingaráhættu gætu því sótt fæðingarþjónustu í Vestmannaeyjum. Hins vegar væri sjúkraflug tryggt af landsbyggðinni á sjúkrahús með sérhæfða starfsemi.
42 konur með lögheimili í Vestmannaeyjum eignuðust börn á síðasta ári. Þar af völdu þrjár konur að fæða í Vestmannaeyjum. Flestar kvennanna áttu hins vegar sín börn á Landspítala, 22 talsins.