fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sylvía ráðin ritstjóri Nýs lífs: Hættir sem ritstjóri Pressunnar

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Fimmtudaginn 23. febrúar 2017 12:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri tímaritsins Nýtt Líf. Hún mun einnig sjá um ýmis önnur verkefni tengd tímaritum Birtíngs. Þetta kemur fram á Pressunni.

Sylvía Rut hefur ritstýrt Bleikt frá árinu 2014 og einnig Pressunni frá því á síðasta ári en lætur nú af þeim störfum. Sylvía Rut tekur við sem ritstjóri Nýs Lífs af Ernu Hreinsdóttur, sem lét af störfum um síðustu áramót, og hefur störf á næstu dögum.

Sylvía Rut hefur starfað hjá Pressunni frá því í júní 2013 en fyrirtækið hefur, eins og kunnugt er, fest kaup á öllu hlutafé í Birtingi og tekur nú við útgáfu á tímaritum fyrirtækisins.

Segir Sylvía að hún sé spennt að takast á við nýtt verkefni.

„Nýtt Líf er tímarit sem á sér langa og áhugaverða sögu en fyrsta tölublaðið kom út árið 1978. Það verður skemmtilegt að halda áfram að þróa þetta tímarit og kynna fyrir lesendum spennandi nýjungar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“