Faðir fimm ára drengs hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og brot á barnaverndarlögum. Þinghaldið er lokað en ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Rúv greinir frá.
Í kærunni segir að maðurinn sé sakaður um að hafa ráðist á son sinn og tekið hann hálstaki og ýtt aftan á háls hans til að reyna að fá hann til að taka vítamín. Segir í frétt RÚV að drengurinn hafi fengið marbletti á framanverðan háls og punktablæðingar í andliti og grunn rifsár á brjóstkassa.