Ákvörðun um hvort taka skuli upp Guðmundar- og Geirfinnsmálin kynnt á föstudag
Endurupptökunefnd hyggst kynna niðurstöður sínar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum næstkomandi föstudag. Um er að ræða úrskurði nefndarinnar að því er lýtur að hvort taka ætti upp að nýju mál sexmenninganna sem dæmd voru fyrir aðild sína að hvarfi þeirra Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar. Kynna á niðurstöðuna klukkan 14:00.
Endurupptökunefnd hefur fjallað um mál þeirra Sævars Ciesielskis, Kristjáns Viðars Viðarssonar, Alberts Kahn Skaftasonar, Tryggva Rúnars Leifssonar, Guðjóns Skarphéðinssonar og Erlu Bolladóttur frá árinu 2014. Sakborningar í málinu höfðu farið fram á að málið yrði tekið upp að nýju ef frá er talinn Kristján Viðar. Ríkissaksóknari beindi því hins vegar til endurupptökunefndar að mál hans yrði einnig skoðað.
Til stóð að kynna niðurstöðu nefndarinnar á síðasta ári en ábending sem barst í tengslum við hvarf Geirfinns olli því að það tafðist á meðan henni var fylgt eftir. Greint hefur verið frá því að ábendingin hafi ekki breytt niðurstöðu nefndarinnar.
Starfshópur sem skipaður var af Ögmundi Jónassyni þáverandi innanríkisráðherra skilaði í mars 2013 skýrslu þar sem fram kom að hafið væri yfir allan skynsamlegan vafa að framburður þeirra sem dæmdir voru hefði ýmist verið óáreiðanlegur eða falskur. Davíð Þór Björgvinsson var settur ríkissaksóknari í málinu og komst hann að því að rök væru fyrir hendi til endurupptöku á málunum.