fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Bjarni átti allt lífið framundan: Fannst látinn í Suður-Afríku – Safnað fyrir fjölskylduna

19 ára piltur sem var í sjálfboðastarfi í Suður-Afríku fannst látinn á sunnudaginn -Safnað fyrir fjölskyldu Bjarna sem er harmi slegin

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 21. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

móðursystir Bjarna Salvars
Íris Jóna Gunnarsdóttir móðursystir Bjarna Salvars

„Bjarni var ótrúlega rólegur, sjálfstæður og átti allt lífið framundan.“ Þetta segir Íris Jóna Gunnarsdóttir, móðursystir Bjarna Salvars Eyvindssonar, sem fannst látinn á útivistarsvæði í nágrenni Höfðaborgar í Suður-Afríku á sunnudagsmorgun.

Vildi láta gott af sér leiða

Bjarna, sem fór nýverið til Suður-Afríku til að vinna sem sjálfboðaliði fyrir Norðursuður.org, hafði verið saknað frá því um hádegi á laugardag. Hann var í fjallgöngu ásamt tveimur piltum á Tafelberg-fjalli þegar hann varð viðskila við þá og týndist. Mjög vont veður var á fjallinu þegar Bjarni, sem varð 19 ára þann 5. febrúar síðastliðinn, lést. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti.

„Hann ætlaði að vera í Suður-Afríku í tvær vikur í hjálparstarfi. Áður en Bjarni fór út var hann búinn að ákveða að fara aftur á næsta ári og þá ætlaði hann að vera í mánuð,“ segir Íris og rifjar upp hvað frænda sínum þótti gaman að hjálpa öðrum. Þá var Bjarni stoð og stytta móður sinnar og mjög náinn fjölskyldunni.

Bjarni var lögblindur en hann sá ekkert með öðru auganu og var sjóndapur á hinu. Það hamlaði honum þó ekki mikið í daglegu lífi en hann var nýbyrjaður að vinna í grunnskóla í Kópavogi. Samhliða því starfaði Bjarni í 10-11 í Hafnarfirði.

„Hann var harðákveðinn að fara í þessa ferð. Ekkert okkar gat stoppað hann. Enda engin ástæða til. Hann var orðinn sjálfráða og var alltaf mjög skynsamur.“

Með honum á myndinni er móðir hans, Bryndis Fjóla Ingimarsdóttir og yngri systir.
Með honum á myndinni er móðir hans, Bryndis Fjóla Ingimarsdóttir og yngri systir.

Íris segir að Bjarna hafi síðustu ár verið mjög umhugað um heilsuna. Fjallgangan var ekki hluti af sjálfboðastarfinu heldur fór hann á útivistarsvæðið með það í huga að skoða sig um í landinu.

Frá því að móðir Bjarna fékk fregnina af andláti sonar síns, um miðjan dag á sunnudaginn, hefur mikið gengið á. Næsta fimmtudag fara móðir hans, uppeldisfaðir og móðuramma til Suður-Afríku til þess að bera kennsl á líkið og ganga frá hinum ýmsu málum svo hægt verði að flytja jarðneskar leifar Bjarna heim til Íslands.

Safnað fyrir fjölskyldu Bjarna

Ferlið sem nú fer í hönd hjá fjölskyldu Bjarna er mjög kostnaðarsamt. Þrátt fyrir að Bjarni hafi verið með ferðatryggingu þá þarf móðir hans að leggja mikið út. Til dæmis fyrir ferðakostnaði til Suður-Afríku og útfararkostnaði.

Styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Bjarna hefur verið stofnaður á nafni Írisar.

„Við hvetjum alla sem geta aðstoðað á þessum erfiðu tímum að leggja hönd á plóg til að gera harmleikinn ögn bærilegri fyrir nánustu aðstandendur Bjarna,“ Íris.

Að lokum segir Íris um frænda sinn:

„Stór hluti fjölskyldunnar fór núna um daginn út að borða, þegar Bjarni varð 19 ára. Mamma ætlaði að gefa honum pening í afmælisgjöf en Bjarni afþakkaði. Hann sagði að það eina sem hann vildi í afmælisgjöf væri að hún kæmi með sér og fjölskyldunni út að borða. Þetta var mjög lýsandi fyrir þennan yndislega strák sem ætlaði að afreka svo margt í lífinu.“

Styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Bjarna

Kennitala: 100477-3439, reikningsnr: 0140-05-071968.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“