Fylgið mælist 27,0 prósent – Fylgi Sjálfstæðisflokksins 24,4 prósent
Vinstri græn mælast með mest fylgi íslenskra flokka samkvæmt skoðanakönnun MMR sem fram fór dagana 10. til 15. febrúar síðastliðinn.
Í frétt um könnunina á vef MMR kemur fram að fylgi Vinstri grænna hafi verið stöðugt milli mælinga og mældist 27,0% líkt og í síðustu könnun sem gerð var dagana 1. til 5. febrúar.
Sjálfstæðisflokkurinn kemur næst á eftir með 24,4% fylgi og er það hækkun um 0,6 prósentustig frá síðustu mælingu. Munurinn á milli þessa tveggja flokka er þó innan vikmarka og því ekki hægt að fullyrða hvor nýtur meira fylgist meðal þjóðarinnar allrar. Fylgi Pírata minnkaði um 1,7% milli mælinga og mælist nú 11,9%.
Stuðningur við ríkisstjórnina hækkaði milli kannana og kváðust 34,9% styðja ríkisstjórnina. Það er 2,3 prósentustiga hækkun frá síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,7% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,0% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 6,2% og mældist 5,6% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mædist nú 5,4% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 4,3% samanlagt.