Stangaveiðifélag Reykjavíkur, SVFR, hefur að undanförnu unnið að endurskoðun reglna um umbun stjórnarmanna félagsins. Stjórnarmenn hafa til þessa fengið tiltekna veiðidaga í ám félagsins fyrir þá vinnu sem innt er af hendi í stjórn. Ágreiningur um hvernig gengið var um þær reglur í fyrrasumar olli því að ákveðið var að hefja undirbúningsvinnu að skýrari reglum. Ekki er þó grunur um misferli, samkvæmt heimildum DV.
Fulltrúaráð og stjórn félagsins skipaði hóp sem skilað hefur tillögum en málið verður rætt á aðalfundi SVFR, þann 25. febrúar. Þrír stjórnarmenn hafa tilkynnt að þeir sækist ekki eftir endurkjöri.