fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Tími þingmanna njörvaður mikið niður

Nota tækifærið í kjördæmaviku til að hitta kjósendur – Ekki bara flækingur á landsbyggðarþingmönnum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 19. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enginn þingfundur hefur verið á Alþingi þessa viku þar eð svokölluð kjördæmavika hefur staðið yfir. Þá er gefið frí frá þingfundum og þingmenn nýta tíma sinn til að fara út í kjördæmin og hitta kjósendur, sveitarstjórnarfólk, halda fundi á stofnunum og í fyrirtækjum.

Kjördæmavika hefur kannski í huga margra einkum snúist um að þingmenn í hinum stóru landsbyggðarkjördæmum hafi tækifæri til að fara út og hitta sína kjósendur. Landsbyggðarþingmenn hafa að talsverðu leyti haft samflot í ferðum sínum um kjördæmið, þó það sé ekki einhlítt. Venjan er að önnur kjördæmavikan hvern vetur sé nýtt með þeim hætti en í hinni vikunni hafi flokkarnir hver fyrir sig skipulagt sína dagskrá.

En þingmenn Reykjavíkur og Suðvesturkjördæmis sitja hins vegar ekki auðum höndum í kjördæmaviku. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að vikan hafi verið þétt pökkuð af heimsóknum í stofnanir og fyrirtæki hjá þingmönnum. „Við höfum síðan haldið félagsfundi fyrir okkar flokksmenn í vikunni. Einstakir þingmenn hafa einnig boðið upp á fasta viðtalstíma sem hafa verið vel nýttir.“

Lágstemmt hjá Sjálfstæðisflokknum

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það nokkuð misjafnt hvað þingmenn flokksins á suðvesturhorninu aðhafist í kjördæmaviku. „Að þessu sinni er engin skipulögð dagskrá hjá okkur þingmönnum Reykjavíkur en þingmenn Kragans hafa hitt sveitarstjórnir í kjördæmunum. Þingmenn hafa nýtt tækifærið og unnið við skrifborðin og hitt fólk á fundum sem ekki hefur gefist tími til í önnum hinna daglegu þingstarfa. Í gegnum árin höfum við oft farið í skipulagða dagskrá með heimsóknum í fyrirtæki og stofnanir auk annars. Það er hins vegar allt lágstemmt hjá okkur í þessari kjördæmaviku, um það var tekin ákvörðun þegar að Ólöf Nordal samflokkskona okkar féll frá í síðustu viku.“

„Eitt af því sem kom mér á óvart þegar ég settist á þing er hve tími þingmanna er mikið niður njörvaður“

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir að það hversu stutt sé frá því að þing kom saman hafi kannski talsverð áhrif á hvernig þingmenn Viðreisnar hagi sinni dagskrá í vikunni, en þingmenn flokksins eru allir nýir fyrir utan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrann Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. „Við eigum auðvitað bara tvo landsbyggðarþingmenn. Við þingmenn Reykjavíkur og Suðvesturkjördæmis höfum ekki verið með skipulagða dagskrá heldur höfum við hvert um sig sinnt ýmsum verkefnum, hitt fólk, farið í stofnanir og fyrirtæki og svo framvegis.
Hanna Katrín segir hún hafi varla reynslu til að segja af eða á um gagnsemi kjördæmaviku. Hún hallist þó að því að hún sé mikilvæg. „Eitt af því sem kom mér á óvart þegar ég settist á þing er hve tími þingmanna er mikið niður njörvaður í fasta fundi. Annars vegar þingfundi og svo nefndarfundi. Þess vegna held ég að það sé gagnlegt að fá tíma í þessum vikum til að sinna baklandinu og kjósendum.“

Píratar bjóða í bíó

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata, segir að þingmenn flokksins hafi nýtt tímann til að hitta flokksmenn og kjósendur með skipulagðri dagskrá. „Rúsínan í pylsuendanum er svo að við ætlum á laugardaginn að bjóða fólki á myndina Democracy í Bíó Paradís, með pallborðsumræðum á eftir.“

Silja Dögg Gunnarsdóttir, varaformaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir að landbyggðarþingmenn flokksins hafi að talsverðu leyti verið í samfloti með þingmönnum annarra flokka, þó ekki í Norðvesturkjördæmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Landsmenn hvattir til að fara yfir bólusetningar sínar áður en farið er í ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna

Landsmenn hvattir til að fara yfir bólusetningar sínar áður en farið er í ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið