Hinn 29 ára gamli Benjamin McDowell taldi sig vera að kaupa ólöglegt skotvopn af Aryan Nation – Tilbað Dylann Roof – Hafði lýst hatri sínu á gyðingum og blökkumönnum á netinu
Hinn 29 ára gamli Benjamin McDowell frá Suður-Karolínu í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn af FBI grunaður um að hafa ætlað sér að fremja fjöldamorð í anda Dylann Roof.
Roof myrti 9 svarta kirkjugesti í Charleston skotárásinni svokölluðu árið 2015. McDowell hafði á netinu lýst aðdáun sinni á Roof og fjöldamorðum hans en fulltrúar FBI leiddu hann í gildru þegar hann var að reyna að kaup byssu.
McDowell taldi sig vera í samskiptum við skoðanabróður sinn Aryan Nations, sem er félagsskapur nýnasista og kynþáttahatara sem trúa á að hvítir séu öðrum æðri.
Ábendingar höfðu borist FBI um ummæli McDowell á netinu þar sem hann lýsti andúð sinni á gyðingum og blökkumönnum svo eitthvað sé nefnt. Í samtölum við fulltrúann sem villti á sér heimildir lýsti hann aðdáun sinni á Roof og að hann væri sjálfur uppfullur af hatri og vildi gera eitthvað af svipaðri stærðargráðu og hann. Einnig að hann myndi rita óð til Dylann Roof á veggina að því loknu. Svo virðist sem hann hafi þó ekki verið búinn að ákveða hvar og hvenær þessi árás yrði gerð.
Vegna fyrri afbrota sinna er McDowell bannað að eignast skotvopn með hefðbundnum leiðum í Bandaríkjunum og á nú yfir höfði sér ákæru vegna kaupanna og hugsanlegra áforma sinna um að fremja hryðjuverk.