Samkvæmt könnun DV er meirihluti Íslendinga á móti nýju áfengisfrumvarpi og vill ekki að áfengi verði selt í verslunum frá og með næstu áramótum. Gríðarleg þátttaka var í könnun DV og voru atkvæði samtals 6.735.
Já, sögðu 2979 eða 44.2 prósent.
Nei, sögðu 3612 eða 53,6 prósent.
144 voru óviss eða 2.1 prósent.
Könnun DV var framkvæmd sama dag og ný könnun Zenter var birt. Þar tóku 1.023 þátt og voru 61,5 mótfallnir frumvarpinu. Þar kom einnig fram að hinir yngri í samfélaginu væru hlynntir því að selja áfengi í búðum.