fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Óttast að verkfallssjóður sé tómur

Greiðslur úr verkfallssjóði Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur dragast á langinn

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 17. febrúar 2017 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert bólar á greiðslu til sjómanna úr verkfallssjóði Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur sem borga átti út í byrjun vikunnar. Áhyggjufullir félagsmenn eru ósáttir við upplýsingaskort vegna málsins og telja að sjóðurinn hafi tæmst. Alls er búið að greiða um 76 milljónir króna úr sjóðnum síðan verkfall sjómanna hófst. Forsvarsmaður SVG vísar því á bug að sjóðurinn sé uppurinn og sagði fyrirspurn DV þess efnis „lúalega“.

400 milljóna tekjutap hjá hinu opinbera

Verkfall sjómanna hefur nú staðið yfir í tæpar 10 vikur og eru um 2.200 sjómenn í verkfalli auk tæplega 500 vélstjóra. Samkvæmt upplýsingum frá Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þá hafa deiluaðilar samið um öll mál, nema hvað varðar skattaafslátt á fæðispeningum. Sú aðgerð, sé miðað við að fjöldi lögskráningardaga sjómanna séu um 600 þúsund dagar á ári og að fæðispeningar séu að jafnaði 1.500 krónur á dag, mun þýða tekjutap ríkissjóðs og sveitarfélaga upp á um 400 milljónir á ári. Þessar tölur komu fram í frétt RÚV um málið.

Kallaði Heiðrún Lind eftir því að stjórnvöld einhentu sér í það verkefni að úrskurða um réttmæti þessarar kröfu en áður hafði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, lagt fram tillögu um almenna skoðun og greiningu á fæðis- og dagpeningum á almennum vinnumarkaði og þeirri skoðun yrði lokið í apríl. Ólíklegt verður að teljast að deiluaðilar hafi þolinmæði eða jafnvel burði til þess að bíða svo lengi.

Ekkert bólar á þriðju greiðslu

Samkvæmt heimildum DV þá óttast félagsmenn Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur að verkfallssjóður félagsins sé tómur. Alls eru 656 félagsmenn sem eiga rétt á greiðslum úr verkfallssjóði hjá SVG en aðeins 380 nýta sér þann möguleika. Ástæða þess að menn kjósa ekki að nýta sér þennan rétt er hugsanlega sú að þeir eru horfnir til annarra starfa.

Byrjað var að greiða úr sjóðnum um miðjan janúarmánuð og áttu félagsmenn von á greiðslum sem nema kauptryggingu háseta, sem eru 234 þúsund krónur á mánuði eða 10.800 krónur alla virka daga. Ætlunin var að greitt yrði á tveggja vikna fresti, alls 117 þúsund krónur í hvert skipti. Tvær greiðslur voru inntar af hendi, alls um 76 milljónir króna, en sú þriðja átti að berast til félagsmanna mánudaginn 13. febrúar síðastliðinn. Engar greiðslur hafa enn borist þrátt fyrir ítrekanir frá félagsmönnum. Í samtali við DV fullyrðir ónafngreindur félagsmaður að gjaldkeri félagsins hafi sagt sjóðinn tóman.

Segja fréttirnar „úr lausu lofti gripnar“

DV hafði samband við forsvarsmenn Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur vegna málsins. Þar var þessum upplýsingum blaðsins vísað á bug og þær sagðar „úr lausu lofti gripnar“. Viðmælandinn sagði fyrirspurn blaðsins vera „lúalega“ en frekari fyrirspurnum var ekki svarað og borið við fjölmiðlabanni deiluaðila.

Ekki fékkst uppgefið hver staðan er á verkfallssjóði Sjómannafélags Vestmannaeyja en þar hafa um 100 sjómenn nýtt sér úrræðið af þeim 177 sem eiga til þess rétt. Starfsmaður félagsins sagðist ekki geta veitt þær upplýsingar og sagði forsvarsmenn félagsins vera upptekna við fundahöld í höfuðborginni. RÚV greindi frá því í janúarlok að SV væri reiðubúið til þess að selja orlofsíbúðir félagsins til þess að standa undir greiðslum úr verkfallssjóði. Þó fékkst staðfest að engin slík skref hafi verið stigin enn sem komið er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi