Samkvæmt nýrri könnun á vegum Zenter rannsókna sem fram fór dagana 9. til 14. febrúar kemur í ljós að meirihluti Íslendinga (61,5%) eru mótfallnir nýju áfengisfrumvarpi sem kveður á um að heimilt verði að selja áfengi í verslunum frá og með næstu áramótum. Aðeins 22,8% svarenda segjast vera hlynntir og 15,7% mjög hlynntir því að fá áfengi í búðir. 15,7 prósent voru óviss á meðan 61,5% voru alfarið á móti að fá áfengi í búðir.
Samkvæmt könnuninni eru hinir yngri í samfélaginu hlynntari því að heimilt verði að selja áfengi í búðum og karlar eru mun meira fylgjandi en konur. Þá eru höfuðborgarbúar einnig marktækt hlynntari áfengisfrumvarpinu en íbúar á landsbyggðinni.
1.023 tóku þátt í könnun ZenterHér til hliðar getur þú svo tekur þátt í könnun DV.