fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Íbúar á tjaldsvæðinu hafa hafnað tilboðum um leiguherbergi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 9. desember 2017 10:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rafmagnstruflanir hafa verið lagfærðar á tjaldsvæðinu Laugardal og aðstæður meirihluta íbúanna þar hafa verið kannaðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar. Flestir dvelja á tjaldsvæðinu vegna erfiðra aðstæðna á leigumarkaði en þó eru dæmi um að íbúar þar hafni tilboðum um leiguherbergi.

Fréttatilkynningin frá Reykjavíkurborg er svohljóðandi í heild:

Gert hefur verið við rafmagnstruflanir á tjaldsvæðinu í Laugardal en íbúar á svæðinu kvörtuðu yfir endurteknum rafmagnstruflunum þegar vettvangs- og ráðgjafateymi á vegum velferðarsviðs borgarinnar fór og kannaði aðstæður hjá íbúum á tjaldsvæðinu í Laugardal.

Að sögn Ámunda Brynjólfssonar hjá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar verður bakvakt sett upp til að hægt verði að bregðast við frekari rafmagnstruflunum auk þess sem sótt hefur verið um stærri heimtaug til Veitna.

Vettvangs-og ráðgjafateymi velferðarsviðs kannaði aðstæður hjá 15 af þeim 17 íbúum sem dvelja á tjaldsvæðinu. Spurt var m.a. hversu lengi viðkomandi hefði búið í þessum aðstæðum, hvert væri lögheimili og hvort viðkomandi myndi þiggja tilboð um leiguherbergi.

Eftir samtal við þessa einstaklinga er ljóst að fólk dvelur þarna af ólíkum ástæðum, flestir vegna erfiðra aðstæðna á leigumarkaði en aðrar ástæður voru einnig nefndar.
Fjórir af þessum einstaklingum eiga lögheimili í Reykjavík, tíu eru úr öðrum sveitarfélögum og hjá þremur er lögheimili óþekkt.

Einungis þrír kváðust þiggja tilboð um leiguherbergi. Tveir þeirra sem höfnuðu tilboði um leiguherbergi, myndu hugsanlega þiggja tilboð þar sem hægt væri að vera með hund.

Þegar fólk úr öðrum sveitarfélögum en Reykjavík var spurt hvers vegna það dvelur á tjaldsvæðinu í Laugardal en ekki í sinni heimabyggð var ástæðan fyrst og fremst sú að tjaldsvæði þar eru almennt lokuð á þessum árstíma. Flestir höfðu búið við þessar aðstæður frá því í sumar.

Allir íbúar á tjaldsvæðinu höfðu rafmagn til að kynda upp hjá sér en eins og fyrr segir þá kvörtuðu þeir yfir stöðugum rafmagnstruflunum. Einnig var kvartað undan slæmu aðgengi að salerni á næturnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat