fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Einar Þór ráðinn aðstoðarritstjóri DV

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Miðvikudaginn 6. desember 2017 18:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Þór Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri miðla Frjálsrar fjölmiðlunar, bæði netmiðla og DV. Einar hóf störf hjá DV sem blaðamaður í fréttadeild vorið 2007 en skömmu áður hafði hann lokið námi í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Einar hefur starfað fyrir net- og blaðaútgáfu DV allar götur síðan.

Einar var vaktstjóri hjá DV árin 2010 til 2014 að hann varð fréttastjóri.

Í vor varð hann aðstoðarritstjóri DV.is og Pressunnar en tekur nú til starfa fyrir alla miðla Frjálsrar fjölmiðlunar ásamt Kristjóni Kormáki Guðjónssyni sem ráðinn var aðalritstjóri miðla Frjálsrar fjölmiðlunar á dögunum.

„Það eru spennandi tímar í vændum hjá fyrirtækinu og ég hlakka mikið til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru. Ég þakka eigendum fyrirtækisins það traust sem mér er sýnt og mun leggja mitt af mörkum til að gera góða fjölmiðla enn betri í þágu okkar fjölmörgu lesenda. Hjá fyrirtækinu starfar hæfileikaríkt fólk og ég hlakka til komandi verkefna,“ segir Einar.

Á föstudag var greint frá því að Björn Þórir Sigurðsson hafi verið ráðinn til Frjálsrar fjölmiðlunar. Hann mun sinna þróunarvinnu fyrir félagið, bæði hvað varðar netmiðla og blað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala