Kyrrt og þurrt veður er um allt land í dag, hlýjast á suðvesturhorninu. Á hádegi verður 3 stiga hiti í Reykjavík og vindhraði aðeins 2 m/sek að sunnan. Víða um land verður vægt frost. Veðrið helst að mestu óbreytt um allt land í allan dag.
Á morgun verður mikil rigning í Reykjavík og kyrrviðri. Annars staðar á landinu verður víða vægt frost. Það kólnar hægt eftir því sem líður á vikuna og á fimmtudag verður komin nokkuð stíf norðanátt með snjókomu fyrir norðan og austan en björtu og kyrru veðri sunnanlands. Á fimmtudag er spáð 5 stiga frosti í Reykjavík.