fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Þetta bar hæst í júní: Vændi, Robert Downey og óhugnanlegt ofbeldisverk

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 29. desember 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annáll-júní

Jón Þór Pírati sagði „fokking“ í ræðupúlti Alþingis

  1. júní
Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, missti stjórn á skapi sínu í pontu Alþingis með þeim afleiðingum að hann bölsótaðist á engilsaxnesku. Rætt var um tillögur Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra vegna skipan dómara í Landsrétt. Sagði hann ferlið allt ófaglegt og það þyrfti að rannsaka. „Við þurfum fokking tíma til að vinna þetta mál,“ bætti Jón við reiður. En sá síðan að sér og baðst velvirðingar á að hafa misst úr úr sér „þetta orð“. Sigríður hefði betur hlustað á Jón Þór, þar sem Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í desember að ráðherrann hefði brotið lög við dómaraskipan sína.

Dæmdur nauðgari á fjölum Þjóðleikhússins

  1. júní

Jozef Pali, albanskur ríkisborgari og hælisleitandi sem lék í leikverkinu Húsið í Þjóðleikhúsinu, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun í febrúar. Húsið var frumsýnt 10. mars og var Josef enn í leikhópnum þann 1. júní. Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri kom af fjöllum þegar DV hafði samband og var auðheyrilega brugðið við tíðindin. Ari brást strax við og kom Josef ekki fram eftir þetta.

Grunur um vændi og mansal í Bólstaðarhlíðarblokk

  1. júní

Lögreglan var með umfangsmikla aðgerð í fjölbýlishúsi í Bólstaðarhlíð þar sem þrennt var handtekið. Var málið rannsakað sem mansals- og vændismál, en einnig fannst eitthvað af fíkniefnum í íbúðinni. „Ég held að íslenskt fjölbýlishús, þar sem allir þekkja alla, sé ekki gáfulegasti vettvangurinn fyrir undirheimastarfsemi sem þessa,“ sagði einn íbúi hússins.

Costco-gíraffinn seldur

  1. júní

Sumar vörur í Costco fengu meiri athygli en aðrar. Frægar að endemum eru stórar styttur af fíl og gíraffa, búnar til úr málmi, sem kostuðu um hálfa milljón króna. Það vakti því nokkra athygli þegar Costco-gíraffinn seldist, en hann keypti Gunnar Páll Tryggvason. Gíraffinn stóð í garði Gunnars og vakti svo mikla athygli að heilu rútufarmarnir af fólki flykktust að til að berja gíraffann augum. Þá má geta þess að gíraffinn var skreyttur fallegum jólaljósum í desember og prýddi jólakort fjölskyldunnar á Facebook.

Brotist inn hjá Bubba

  1. júní

Bubbi Morthens greindi frá því á Twitter að brotist hefði verið inn til sín í Kjósinni. Bubbi var ekki heima, en hurðir voru eyðilagðar og skartgripum stolið. Sagði hann lögreglu hafa gómað þjófinn, en saknaði enn dýrmætra muna. „Kauði náðist, flest allt kom til baka, ógæfa, vona hann finni lífið,“ sagði Bubbi einnig á Twitter.

Stjórnandi Costco-hóps á Facebook sakaður um einræðistilburði

  1. júní
    Í kjölfar komu Costco var stofnaður Keypt í Costco-hópur á Facebook, sem telur nú tæplega hundrað þúsund manns. Stjórnandi hópsins, Sólveig Fjólmundsdóttir, var þó fljótlega sökuð um valdníðslu og einræðistilburði, en hún þótti henda út færslum meðlima af miklum móð, í anda ritskoðunar. Flestar færslurnar voru á léttu nótunum, meðal annars ljóð, en slíkt virtist ekki hljóta náð fyrir augum Sólveigar.

Auglýsing Reykjavíkurborgar innihélt þrettán innsláttarvillur

  1. júní
    Reykjavíkurborg óskaði eftir ráðgjafa á sviði máls og læsis með auglýsingu á job.is og atvinnuvef vísis. Hið fréttnæma er að auglýsingin innihélt 13 innsláttarvillur, meðal annars var auglýst eftir: „„ráðgjafn til að efla læsibarna“. Ekki var um snilldarlega kaldhæðna auglýsingaherferð að ræða, því auglýsingin var leiðrétt stuttu síðar.

Manndráp í Mosfellsdal

  1. júní

Sex voru handteknir eftir að hafa veist að manni í Mosfellsdal. Var málið sagt tengjast handrukkun en í tilkynningu lögreglu kom fram að rannsókn málsins væri umfangsmikil. Hinn látni hét Arnar Jónsson Aspar.

Katrín Jakobsdóttir ósátt við vopnaburð lögreglu á Colour Run

  1. júní

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, gagnrýndi vopnaburð lögreglu á Colour Run-hlaupinu í miðborginni. Hún sagðist ósátt við að almenningur hefði ekki fengið að vita um það fyrirfram og ætlaði að taka málið upp á fundi Þjóðaröryggisráðs Íslands. Þessi aukni viðbúnaður lögreglu kom í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London og Manchester skömmu áður.

Hetjudáð héraðslögreglumanns í Ölfusá

  1. júní

Kolbeinn Helgi Kristjánsson, héraðslögreglumaður á Suðurlandi, vann mikla hetjudáð þegar hann bjargaði manni er hugðist svipta sig lífi, í Ölfusá. Áin sú er ein sú straumharðasta og hættulegasta á landinu og hafa margar sálir ekki átt afturkvæmt þaðan. Guðrún Eva Mínervudóttir, rithöfundur og ljóðskáld, er systir Kolbeins. Hún skrifaði um bróður sinn á Facebook: „Bróðir minn hefur alltaf verið hetja, en nú er það opinbert!“

Barnaníðingurinn Robert Downey fær uppreist æru

  1. júní

Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, fékk lögmannsréttindi sín að nýju eftir að Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, þar sem svipting réttinda hans til að starfa sem lögmaður var felld niður. Róbert var dæmdur fyrir barnaníð árið 2008 fyrir brot gegn fjórum stúlkum. Í dómnum sagði að Róbert hefði ríka hagsmuni til að fá aftur réttindin, þar sem hann ætlaði að sinna sams konar störfum að nýju. Þar sagði einnig: „Þá skipti það hann miklu máli að geta skilið við þann kafla í lífi sínu sem leitt hafi til dómsins á árinu 2008.“

Guðni forseti miður sín vegna uppreist æru-málsins

  1. júní

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, kvaðst miður sín vegna uppreist æru-málsins, þegar Robert Downey hlaut lögmannsréttindi sín að nýju, þar sem hann hlaut uppreist æru hjá forsetanum. Guðni útskýrði þó að ákvörðunin væri ekki hans, heldur dómsmálaráðuneytisins. Undirritun forseta væri einfaldlega formlegs eðlis og arfur frá liðinni tíð. Mælti Guðni með að lögum yrði breytt, ef hann þyrfti að taka ákvarðanir um uppreist æru, annars væri þetta staða sem hann vildi ekki vera settur í.

Gagnrýndi Stígamót fyrir andlegt ofbeldi og einelti

  1. júní

Fráfarandi framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir, sagðist hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi og einelti af hálfu yfirmanna Stígamóta, meðan hún starfaði þar. Hún gagnrýndi einnig ófaglega starfsemi samtakanna, til dæmis að henni hafi verið tjáð nöfn fjölda þjóðþekktra manna sem sakaðir voru um að brjóta kynferðislega á þeim sem leitað höfðu til Stígamóta. Helga sagðist ekki vera að reyna að koma höggi á samtökin, margt gott starf væri þar unnið, en engin stofnun væri hafin yfir gagnrýni.

Fjallið ber til baka fregnir af barsmíðum í garð barnsmóður

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

  1. júní

Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson, einnig þekktur sem Fjallið, hafnar því að vera ofbeldismaður sem beitt hafi barnsmóður sína barsmíðum. Thelma Björk Steimann, sem er barnsmóðir Hafþórs, bar því við í Fréttablaðinu að Hafþór hefði ítrekað beitt sig ofbeldi meðan á sambandi þeirra stóð og kærði Hafþór til lögreglu. Hafþór neitaði sök og sagði Thelmu hafa beitt sig bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Hjalti Úrsus segir son sinn saklausan um morðtilraun – gagnrýnir vinnubrögð lögreglu

  1. júní

Hjalti Úrsus Árnason, faðir Árna Gils, sem ákærður var fyrir morðtilraun og sat í fjóra mánuði í gæsluvarðhaldi, segir alvarlegar brotalamir á rannsókn málsins. Hann viðurkennir að sonur sinn hafi ekki hagað sér eins og engill, en sé þó ekki sekur um morðtilraun. Hann segir að ekki sé allt sem sýnist í málinu og ber því við að um nýtt Geirfinnsmál sé að ræða, slík séu vinnubrögð lögreglu.

Kærir yfirvöld fyrir óþarfa hörku sérsveitarinnar við handtöku – Miðuðu byssu að barni

  1. júní

Erna Ósk Agnarsdóttir kærði yfirvöld fyrir óþarfa harðræði víkingasveitarinnar er hún og sambýlismaður hennar voru handtekin. Hún segir að meðal annars hafi byssu verið miðað að fimm ára barni hennar og öskrað á það að vera kyrrt. Einnig hafi tveggja ára barn hennar verið á staðnum. Þá hafi óþarfa hörku verið beitt gegn sambýlismanni hennar. Hún sagði það engu máli skipta að bæði hefði hún og sambýlismaður sinn hlotið fangelsisdóma, það væri liðin tíð. Að sögn lögreglu var brugðist við útkalli um þekkta afbrotamenn vopnaða haglabyssu og skammbyssu, auk þess sem skothvellir hefðu heyrst. Það hafi reynst orðum aukið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Í gær

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu