fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Birgir: „Mig dreymdi að Sigmundur Davíð myndi lenda í hremmingum“

Þingmaður Miðflokksins segir að Sigmundur Davíð sé enginn einræðisherra – Dreymdi fylgi flokksins

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 21. desember 2017 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Þórarinsson er ekki landsþekktur maður, að minnsta kosti ekki ennþá. Birgir er oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi og var kjörinn á þing í haust. Miðflokkurinn er enn að stórum hluta óskrifað blað í íslenskum stjórnmálum, flokkurinn var stofnaður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni nokkrum vikum fyrir kosningar eftir að Sigmundur yfirgaf Framsóknarflokkinn. Flokkurinn gaf sig út fyrir að vera eins konar framhald af Framsóknarflokknum þegar hann var undir stjórn Sigmundar á árunum 2009 til 2016. Birgir var úti í kirkju sem hann er að byggja í túninu heima af Minna-Knarraðarnesi á Vatnsleysuströnd þegar blaðamann DV bar að garði. Kirkjan er gamaldags sveitakirkja í íslenskum 19.aldar stíl og virðist vera fullkláruð að utan en innandyra sést að það á mikið eftir að gera. „Ég stefni á að vígja hana sumarið 2019. Það á margt eftir að gera, ég á eftir að klára loftið, þar ætla ég að koma fyrir skrifborði til að skrifa þingræður,“ segir Birgir stoltur. „Það var aldrei kirkja hérna, það má segja að ég sé að þessu í stað þess að gera upp fornbíl. Þetta sameinar líka tvö áhugamál hjá mér, guðfræðina og arkitektúr í gamla stílnum.“

Stjórnmálaferillinn byrjaði með ferðalagi með Guðna

Stjórnmálaferillinn byrjaði með ferðalagi með Guðna

„Ferill minn í stjórnmálum byrjaði með ferðalagi með Guðna Ágústssyni um Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar 2003. Guðni hefur einstaka hæfileika við að ná tengslum við fólk. Ég man þegar við fórum að Núpsstöðum í Skaftárhreppi, þar bjuggu tveir bræður á tíræðisaldri, þeir Eyjólfur og Filippus. Guðni sagði mér að spyrja þá að einhverju gáfulegu. Ég tók þessi orð Guðna mjög alvarlega og um leið og ég var búinn að heilsa þeim bræðrum spurði ég Filippus: „… og hvað eruð þið bræðurnir svo með margar skepnur?“ Hann svaraði um hæl: „Skepnur, væni minn? Þær eru nú bara tvær… ég og Eyjólfur.“ Ég sagði ekki meira á þeim bænum.“

Sigmundur Davíð er enginn einræðisherra

Birgi er margt til lista lagt, hann er guðfræðingur, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og hefur síðustu ár unnið að því að stækka hús fjölskyldunnar við sjávarsíðuna.
Hvernig kom það til að þú tókst sæti á lista Miðflokksins?
„Ég þekki Sigmund síðan hann tók við Framsóknarflokknum og við urðum góðir vinir, hann tók til dæmis fyrstu skóflustunguna að kirkjunni þegar hann var forsætisráðherra. Við ferðuðumst saman norður í aðdraganda kosninganna og ég skynjaði það að margir vildu losna við hann úr flokknum. Þegar Sigmundur fékk mótframboð í oddvitasætið í haust þá vissi ég að hann ætti ekki lengur samleið með þessu fólki og ég hvatti hann til að hætta í flokknum,“ segir Birgir. Það kom því ekki á óvart að Sigmundur tæki skrefið og stofnaði nýjan flokk. „Ég treysti Sigmundi Davíð, ég veit að hann er að berjast fyrir hag landsmanna.“
Er Miðflokkurinn aðeins flokkur Sigmundar Davíðs?
„Nei, alls ekki, ég finn það á þingflokksfundum okkar. Hann situr oft bara og hlustar á okkur hin. Hann er alls enginn einræðisherra, hann vill hjálpa og hefur hjálpað okkur sem erum ný á þingi að læra hvernig þetta virkar. Sama með Gunnar Braga og Þorstein, sem hafa setið á þingi áður, þeir eru bara hluti af hópnum.“

„Fljótlega eftir að hann greindist deymdi mig að hann myndi tapa þessari baráttu.“

Vekja ótta hjá gömlu valdaflokkunum

Birgir lítur inn um rúðuna á kirkjunni, gluggalistinn er vel skreyttur með krossi efst fyrir miðju, það eina sem bendir til nútímans er ný galvanhúðuð skrúfa sem heldur glugganum saman.
„Ég hef fengið góð ráð frá Árbæjarsafni um hvernig þetta á að líta út,“ segir Birgir. Aðspurður hvort Miðflokksmenn verða harðir í horn að taka í stjórnarandstöðu segir Birgir að málefnin verði í forgangi. „Við erum skynsemisflokkur og ætlum alls ekki að standa í vegi fyrir góðum hugmyndum. En ákveðin að sama skapi. Sigmundur er þekktur fyrir að vera mjög harður í stjórnarandstöðu og ég er sannfærður um að hann verði það núna. Þessi ríkisstjórn er tilraun og annaðhvort tekst hún eða mistekst. Fólk bindur miklar vonir við Katrínu og hún hefur staðið sig vel í þessum stjórnarmyndunarviðræðum, en hún er þarna með meðreiðarsveina af gamla skólanum sem vilja vera í hennar sæti. Þetta verður áhugavert,“ segir Birgir og glottir.
Það var aldrei leitað til ykkar í stjórnarmyndunarviðræðunum, hvernig mun ykkur takast að starfa með hinum stjórnarandstöðuflokkunum?
„Við slógum Íslandsmet sem nýr flokkur, við teljum okkur vera sigurvegara kosninganna. En það er greinilegt að það eru einhverjir hræddir við okkur, sérstaklega gömlu valdaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Það eru margir ekki sáttir við okkar stefnu, að stokka upp í fjármálakerfinu, það eru öfl í þessu samfélagi sem vilja koma í veg fyrir það. Þetta spilar allt inn í og þess vegna var okkur markvisst haldið fyrir utan. Við erum ekkert sár, það er hollt fyrir nýjan flokk að vera í stjórnarandstöðu og byggja sig upp.“ Varðandi hina stjórnarandstöðuflokkana segir Birgir það jákvætt að ríkisstjórn fái aðhald úr mörgum áttum. „Við höfum átt í ágætis samræðum fram til þessa, en við höfum ekki ákveðið hvort við myndum eina heild.“

Kirkjan er smækkuð eftirmynd Búðakirkju á Snæfellsnesi. Birgir segir að nokkrar fyrirspurnir hafi borist hvort kirkjan sé laus til giftinga.
Kirkja í hlaðinu á Vatnsleysuströnd Kirkjan er smækkuð eftirmynd Búðakirkju á Snæfellsnesi. Birgir segir að nokkrar fyrirspurnir hafi borist hvort kirkjan sé laus til giftinga.

Mynd: Ari

Dreymdi fylgi Miðflokksins

Bak við kirkjuna er fornt leiði. „Það er talað um þetta leiði í ævisögu Benjamíns H.J. Eiríkssonar, leiðið var gamalt þegar hann var í sveit hér 1906. Það er einnig á dagskrá að hlaða hringlaga grjótvegg utan um kirkjuna, ég hef fengið smá ráðgjöf frá Minjastofnun um það.“
Þú nefndir það við mig að þú værir berdreyminn. „Já, frá því ég var unglingur hefur mig dreymt drauma sem hafa ræst. Ég fór hins vegar ekki að veita þessu nógu mikla athygli fyrr en á síðari árum þegar ég fór að læra að ráða í draumana. Ég missti mág minn úr krabbameini fyrir rúmu ári síðan, aðeins 51 árs að aldri. Fljótlega eftir að hann greindist deymdi mig að hann myndi tapa þessari baráttu. Það var erfitt því ég bjó þá erlendis og hefði viljað styðja meira við bakið á honum.“
Dreymir þig pólitíkina?
„Já, mig dreymdi að Sigmundur Davíð myndi lenda í hremmingum og segja af sér sem forsætisráðherra. Í vor dreymdi mig síðan að hann ætti eftir að komst aftur til áhrifa í stjórnmálum. Mig hefur einnig dreymt fleiri en ein kosningaúrslit. Þannig dreymdi mig að Miðflokkurinn fengi 11 prósent atkvæða, hann fékk 10,8 prósent. Sá draumur var á þá leið að ég var staddur í lyftu sem fór hratt upp og staðnæmdist á 11. hæð. Ég vissi um leið og ég vaknaði að þetta yrði fylgi Miðflokksins. Það sem er þó mikilvægast er að kunna að fara með þessa náðargjöf sem draumar geta verið.“

Ákvörðun Donald Trump setur friðarferlið í uppnám

Ákvörðun Donald Trump setur friðarferlið í uppnám

Birgir starfaði í Mið-Austurlöndum fyrir Sameinuðu þjóðirnar og bjó hann með fjölskyldunni í Austur-Jerúsalem. Hann starfaði hjá UNRWA sem rekur heilsugæslu, menntakerfi og félagslegt kerfi fyrir 5 milljónir palestínskra flóttamanna. Birgir segir dapurlegt að fylgjast með nýjustu fréttum frá þessu svæði. „Ákvörðun Donalds Trump að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels setur allt friðarferlið í uppnám. Fólk á þessum slóðum hefur þurft að þjást nóg fyrir misvitrar ákvarðanir pólitíkusa, bæði ísraelskra, palestínskra og erlendra þjóðarleiðtoga. Ég ræddi oft við unga Palestínumenn um hvað væri þeim mikilvægast í lífinu almennt. Þeir vilja búa við öryggi, hafa vinnu, eiga sitt eigið heimili og hafa ferðafrelsi, rétt eins og ungt fólk í Ísrael og um heim allan. Þetta á að vera útgangspunkturinn í friðarviðræðunum; öryggi fyrir Ísraelsmenn og Palestínumenn, jafnrétti og atvinna fyrir alla, líf án múra og aðskilnaðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“