Það kanna að hafa virst klókt hjá Vinstri grænum að fá Guðmund Inga Guðbrandsson, framkvæmdastjóra Landverndar, sem umhverfisráðherra. Strax og ráðherralistinn var tilkynntur fékk flokkurinn mikið hrós alls staðar af vinstri vængnum og vildu margir meina að nýrri ríkisstjórn væri alvara í umhverfismálum. Guðmundur virðist þó ætla að verða aðalskotspónn þeirra sem styðja ekki stjórnina hægra megin frá. Gunnar Bragi Sveinsson kallar eftir ráðherra fólksins eftir að Guðmundur lýsti sér sem ráðherra náttúrunnar. Gunnlaugur Ingvarsson, fyrrverandi oddviti Þjóðfylkingarinnar, talar um afturhald og stöðnun ókjörins fulltrúa og Gústaf Níelsson talar um pólitíska náttúrufræði. Það sem átti að vera rólegt kjörtímabil í umhverfismálum gæti því snúist upp í andstæðu sína.