Dagur Hoe Sigurjónsson hefur verði úrskurðaður í gæsluvarðhald til 12. janúar á grundvelli almannahagsmuna. Hann er grunaður um að hafa stungið Klevis Sula, tvítugan Albana, í hjartastað á Austurvelli. Dagur er jafnframt grunaður um að hafa stungið annan Albana en sá komst lífs af.
DV greindi ítarlega frá málinu á föstudaginn en Dagur var handtekinn á heimili ömmu sinnar og afa í Garðabæ, en þar hefur hann búið undanfarið. Samkvæmt heimildum DV var sérsveitin einnig send á heimili föður hans. Varð heimilisfólk þar mjög óttaslegið. Aðstandendur halda því fram að þetta sé í fyrsta sinn sem Dagur hafi komist í kast við lögin en svo virðist sem hann hafi leiðst út í fíkniefnaneyslu síðustu misseri.
Fram hefur komið að lögregla gat ekki yfirheyrt hann þegar hann var handtekinn sömu nótt og árásin átti sér stað sökum þess að Dagur var undir miklum áhrifum fíkniefna og óviðræðuhæfur.
Málið hefur haft mikil og djúpstæð áhrif á báðar fjölskyldurnar og sorgin er mikil. Önnur fjölskyldan sér á eftir ungum manni í gröfina. Hin horfir á brostna framtíð ungs manns sem mun líklega dvelja á bak við lás og slá næstu árin.
Dagur var handtekinn á heimili ömmu sinnar og afa í Garðabæ, en þar hefur hann búið undanfarið. Samkvæmt heimildum DV var sérsveitin einnig send á heimili föður hans. Varð heimilisfólk þar mjög óttaslegið. Aðstandendur halda því fram að þetta sé í fyrsta sinn sem Dagur hafi komist í kast við lögin en svo virðist sem hann hafi leiðst út í fíkniefnaneyslu síðustu misseri. Fram hefur komið að lögregla gat ekki yfirheyrt hann þegar hann var handtekinn sömu nótt og árásin átti sér stað sökum þess að Dagur var undir miklum áhrifum fíkniefna og óviðræðuhæfur.
„Þetta er góður drengur. Fjölskyldan er í áfalli, þetta er algjör harmleikur,“ sagði aðstandandi Dags í samtali við DV fyrir helgi. Aðstandendur vilja ekki fullyrða að Dagur hafi verið að verjast árás en þeim finnst það þó ekki ólíklegt í ljósi sögu hans. Líkt og fyrr segir herma heimildir að Dagur beri fyrir sig sjálfsvörn en hann varð fyrir alvarlegri líkamsárás fyrir nokkrum vikum þar sem hópur erlendra manna gekk í skrokk á honum. Í því samhengi er bæði talað um albanska eða pólska menn. Samkvæmt heimildum DV er þessi frásögn Dags einnig til skoðunar hjá lögreglu og ekkert útilokað í þeim efnum. Þá hefur lögreglan legið yfir myndböndum úr eftirlitsmyndavélum sem eru í nágrenni Austurvallar.
En ef málið hefur reynt á aðstandendur Dags, þá hefur það reynt enn meira á aðstandendur Klevis. Þau hafa þurft að standa straum af miklum útgjöldum á sama tíma og þau glíma við mikla sorg. DV greindi frá því að styrktarreikningur hafi verið stofnaður svo unnt væri að flytja líkið til Albaníu og halda jarðarför þar. Aðstandandi Klevis sagði í samtali við DV í gær að söfnuninni væri lokið þar sem söfnunin hafi náð markmiði sínu. Þakkaði fjölskyldan fjölmiðlum og þjóðinni fyrir stuðninginn.
„Það tókst að safnast bæði fyrir flutningnum til Albaníu og jarðarförinni. Reikningurinn var einungis stofnaður til að safna fyrir þessu og eins og áður sagði hefur takmarkinu verið náð. Bæði fjölskylda og vinir eru innilega þakklát, bæði fyrir umfjöllunina sem og íslensku þjóðinni fyrir hjálpina, þetta hefði aldrei tekist án ykkar,“ sagði aðstandandi Klevis.