Breiðholt hefur löngum verið þekkt fyrir afbrot, hvort sem það hafi verið sanngjarnt eða ekki, en miðað við umræðuþráð Breiðhyltinga á Facebook virðist dóp flæða um hverfið. Einn maður talar um að ástandið sé eins og í Kristjaníu í Danmörku. Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingmaður, tekur til máls og segir að lögregla hafi ekki hlustað á sig þegar hún fundaði með lögreglu.
Einn íbúi, Guðmundur, hóf umræðuna og spurði hvers vegna svo lítið væri talað um fíkniefnaneysluna í hverfinu. „Flott hverfi en það kemur mér svolítið á óvart, þar sem ég hef búið viða, bæði i Reykjavík og erlendis. Þá finnst mér ég verða vitni að talsverði dópneyslu á sumum stöðum sem og dópsölu,“ segir Guðmundur.
Í samtali við DV segir Guðmundur að hann hafi einfaldlega velt fyrir sér hvort fíkniefni hafi verið lögleidd í Breiðholti. „Það er göngustígur sem liggur á bak við Iðufell upp að Eddufelli. Stígurinn er kallaður dópstræti og það er mikil sala á milli fimm og sjö á kvöldin. Þetta er læknadóp og kannabis. Þetta er ungt fólk að kaupa af eldra,“ segir Guðmundur. Hann segist hafa búið í miðbæ Reykjavíkur og fíkniefnaneyslan þar sé ekkert í líkindum við Breiðholt.
Færsla Guðmundar vakti talsverð viðbrögð og voru margir á sama máli, það væri allt of mikið af fíkniefnaneyslu í Breiðholti og ekkert væri gert í því. „Já, þetta er erfitt málefni að eiga við og rétt hjá þér að það er allt of mikið um þetta, líka hérna í Bökkunum. Ég hef oft þurft að hafa afskipti af ungu fólki hérna fyrir utan blokkina hjá mér og komið að allskyns rusli eftir neysluna þeirra, verst er að lögreglan er allt of undirmönnuð til þess að eiga við þetta af einhverri alvöru,“ segir einn Breiðhyltingur.
Annar segist sjálfur henda sprautunálum sem hann finnur á víðavangi: „Í sumar tók ég reglulega upp sprautunálar við suma bekkina í skrúðgarðinum við Austurberg og fargaði heima. Alltof oft sá ég þetta á röltinu með voffann, sérstaklega þar sem bekkir eru á skjólsælum stöðum.“
Einn maður merkir sérstaklega nokkra stjórnmálamenn, þar á meðal Nichole Leigh Mosty, sem hefur verið formaður hverfisráðs Breiðholts frá árinu 2014. „Ég hef margoft reynt eftir bestu getu að beitta mér í þessum málum. Ég hef kallað á fund með lögreglunni þar sem komið var fram við mig eins og áhyggjufulla húsmóðir af hendi lögreglu. Það var meira að segja sagt við mig að ég var að ýkja málið og að þær fjölmörg tilkynningar sem ég nefndi voru ekki skráð hjá þeim svo að ég hlaut að hafa ekki tilkynnt eins oft og ég sagði. (ég var og er enn smá ósátt yfir þessari framkomu),“ skrifar Nichole.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt að efla forvarnir ungmenna í Breiðholti. „Löggæslumál í Breiðholti voru helsta umræðuefni aðalfundar íbúasamtakanna Betra Breiðholts sem haldinn var í síðustu viku. Fulltrúar lögreglunnar fluttu áhugaverð erindi og skiptust svo á skoðunum við okkur fundargesti um stöðu þessara mála og leiðir til að efla löggæsluna. Ljóst er að fíkniefni koma við sögu í mörgum afbrotamálum fyrir utan öll þau vandamál sem þau hafa í för með sér fyrir fíkniefnaneytendur og fjölskyldur þeirra. Við þurfum þó ekki síður að efla forvarnir á einstaklingsbundnum grunni sem skila ætíð mestum árangri í baráttunni við þennan vágest, t.d. í skólum og félagsstarfi,“ skrifar Kjartan.