Máttur samfélagsmiðla á borð við Facebook er mikill og þeir gera fólki kleift að eiga góð samskipti og jafnvel kynnast nýju fólki. Það er einmitt það sem gerðist hjá Alexandria Gayton-Gutierrez, 21 árs, og Jonathan Geffner, 64 ára, en þau kynntust á Facebook. Eitt leiddi af öðru og þau urðu ástfangin. Aldursmunurinn truflar þau ekki en þau verða oft vör við að fólk heldur að þau séu feðgin.
Daily Star skýrir frá þessu. Haft er eftir Jonathan að fólk haldi oft að þau séu feðgin en þau brosi bara að því. Hann sagði að samband þeirra væri kannski óvenjulegt en það gangi vel.
Þau kynntust fyrir tveimur árum í Facebookhóp aðdáenda bandaríska grínistans Harpo Marx og smullu saman um leið. Þau skrifuðust á í margar vikur og upp úr því vöknuðu tilfinningar hjá þeim í garð hvors annars.
Þau heimsækja hvort annað reglulega en Alexandria býr í Texas en Jonathan í New York. Hann á tvær dætur, 20 og 17 ára. Alexandria er í námi en Jonathan starfar sem búktalari.
Daily Star hefur eftir Jonathan að hann hafi barist á móti tilfinningum sínum í upphafi og hafi sagt við Alexandria að það væru mistök að vera í sambandi með henni en það væru stærri mistök að gera það ekki.
Foreldrar Alexandria og vinir hennar höfðu áhyggjur af sambandinu í upphafi en hafa nú sætt sig við það en það sama er ekki hægt að segja um ókunnuga sem furða sig oft á sambandi þeirra.