„Þetta er hann Brandon, en hann var hér á landi í síðustu viku ásamt eiginkonu sinni.“
Svona hefst færsla á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum en hún fjallar um ung hjón sem lentu í því leiðinaratviki á dögunum að farið var inn í bifreið þeirra. Hjónin gleymdu að læsa bifreiðinni þar sem hún stóð á bifreiðastæði við hótelið sitt nóttina fyrir brottför.
„Í bílnum var mjög verðmætur ljósmyndabúnaður sem er verðmetinn á tæpa milljón ásamt mjög mörgum ljósmyndum úr evrópuferð þeirra og öllu var þessu stolið. Við fengum ábendingu um hugsanlegan geranda í þessum þjófnaði og fórum á stúfana. Að sjálfsögðu höfðum við uppi á þessum geranda og vísaði hann á allt þýfið og skilaði því heilu til okkar.“
Að sögn lögreglu gerði Brandon sér lítið fyrir og flaug til Íslands í morgun og sótti búnaðinn, en hann fer svo af landinu aftur í dag.
„Boðskapur þessarar færslu er að sjálfsögðu að minna ykkur á að læsa bílunum ykkar og sérstaklega núna þegar bílarnir okkar fara að fyllast af dýrum jólapökkum, ekki viljum við lenda í því að jólagjöfunum okkar verði stolið.“