Lögregla rannsakar nú árás unglingspilts á 10 ára stúlku í Garðabæ. Pilturinn, sem er ófundinn, greip í stúlkuna og tók fyrir munn hennar. Hann reyndi að draga hana afsíðis en sleppti henni þegar vinkona stúlkunnar kom kallandi. Móðir stúlkunnar, Vigdís Ólafsdóttir, greindi frá árásinni á Facebook. Hún segir að pilturinn hafi sennilega verið um 17 til 19 ára og verið klæddur ljósri hettupeysu og í svartri mittisúlpu.
„Ég frétti fyrr í kvöld að svipað atvik hafi átt sér stað fyrir nokkrum vikum síðan við Lækjarfit en stelpan sem lenti í svipuðu atviki náði að losa sig og hlaupa í burtu. Hvað honum gekk til veit ég ekki og þori í raun ekki að hugsa þá hugsun hvað hefði gerst ef hann hefði ekki orðið hræddur og sleppt henni. En endilega verið á varðbergi og fylgist með börnunum ykkar og ekki láta þau ganga ein í myrkrinu. Ef þið hafið heyrt af svipuðu atviki hér í Garðabæ þá endilega látið mig vita,“ lýsir Vigdís.
Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri lögreglunnar í Hafnarfirði, staðfestir í samtali við mbl.is að málið sé á borði lögreglu. Lögreglu sé ekki kunnugt um hver árásarmaðurinn sé. „Það voru engar vísbendingar um hver þetta gæti verið þegar málið var afgreitt á vettvangi,“ segir Sævar.