Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, var í dag í viðtali við Egil Helgason í þættinum Silfrinu á RÚV, um ójöfnuð á Íslandi. Stefán hefur lengi rannsakað þessi mál og hefur nýverið við annan mann sent frá sér bók skiptingu tekna og eigna á Íslandi í fjölþjóðlegum samanburði.
Heimir Már Pétursson, þrautreyndur fréttamaður á Stöð 2 og umsjónarmaður þjóðmálaþáttarins Víglínunnar, er ekki alveg sáttur við þetta og telur Stefán hafa gengið framhjá sér með þessari heimsókní þátt Egils – augljóslega séu margir sem snobba fyrir RÚV. Segist Heimir hafa í 20 ár árangurslaust reynt að fá Stefán í viðtal. Heimir Már skrifar þessa hressilegu færslu:
Gamla ríkissnobbið. Hef reynt í 20 ár án árangurs að fá Stefán Ólafsson einn af mínum gömlu tilraunum til uppfræðslu í HÍ til viðtals án árangurs. Hann hefur ALLTAF sagt nei. Sé hann svo í fræðarunki hjá Agli. Helvíti er Rúvrunkið öflugt, snobbið og fyrirlitningin , eins ómerkilegt og það er RÚV og allt það helvítis ríkisskítapakk er!