fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Fótur af dádýri fannst í innfluttum spæni hér á landi: Grunur um skemmdarverk

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 7. desember 2017 15:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Lífland hefur innkallað spæni frá Staben í Svíþjóð eftir að fótur af klaufdýri fannst í einum bagga síðdegis á mánudag. Líklega er um fót af dádýri að ræða. Dýrahræ geta borið með sér smitefni og sem varúðarráðstöfun hefur fyrirtækið innkallað alla sendinguna af spæninum og stöðvað dreifingu,“ segir í tilkynningu sem Matvælastofnun sendi frá sér í dag.

Þar segir að Lífland hafi tilkynnt Matvælastofnun síðla mánudags um að alifuglabóndi hefði fundið fót af klaufdýri í innfluttum spæni sem hann var að dreifa í tómu alifuglahúsi. Spænirinn var fjarlægður, húsið þvegið og sótthreinsað. Í kjölfarið og í samráði við stofnunina brást Lífland hratt við og stöðvaði strax dreifingu á spæni úr viðkomandi gámi,“ segir í tilkynningunni.

Hringt var í þá aðila sem vitað var að hefðu keypt úr gáminum og var varan innkölluð. Að sögn Matvælastofnunar hafði ein hestavöruverslun á höfuðborgarsvæðinu fengið spæni úr viðkomandi sendingu sem hún hafði í almennri sölu.

„Nokkurn tíma tók að hafa uppi á öllum kaupendum, en í morgun náðist í þann síðasta. Aðeins sex eigendur höfðu borið spæninn undir hross og einn þeirra undir sauðfé að auki. Hafa þeir nú hreinsað viðkomandi stíur samkvæmt leiðbeiningum frá Matvælastofnun. Hverfandi líkur eru taldar á að smit hafi borist í dýr hér á landi við þetta atvik, en þó verður eftirlit með heilsufari dýranna sem komust í snertingu við spæninn aukið næstu vikurnar,“ segir í tilkynningunni og því bætt við að Matvælastofnun hafi óskað eftir upplýsingum frá dýraheilbrigðisyfirvöldum í Svíþjóð um sjúkdómastöðu í hjartardýrum þar í landi. Samkvæmt fyrstu svörum er ekki vitað um alvarlega smitsjúkdóma í þeim.

„Samkvæmt upplýsingum frá sænska fyrirtækinu er framleiðslulínan lokuð og með þannig tækjabúnaði að fóturinn sem fannst hafi ekki geta farið þar í gegn, því telur fyrirtækið að honum hafi verið komið fyrir og að um skemmdarverk sé að ræða í verksmiðjunni . Málið er rannsakað sem slíkt í Svíþjóð. Matvælastofnun vill þakka Líflandi fyrir ábyrg og snör viðbrögð svo og öllum þeim sem komu að þessari innköllun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala