Alþingi hefur aðeins fundað í 58 daga allt árið 2017. Á sama tíma hafa aðrir mætt til vinnu 227 daga fyrir utan sumarfrí, eru þá helgar og lögbundnir frídagar ekki taldir með.
Fram kemur í svari skrifstofu Alþingis við fyrirspurn Eyjunnar að á 147. þingi, dagana 12. til 26. september í ár, voru þingfundadagar sex sem skiptust í átta þingfundi.
Á 146. þingi, sem var frá 6. desember í fyrra til 1. júní 2017, voru þingfundadagar alls 61, níu fyrir jól og 52 eftir jól, frá 24. janúar til 1. júní 2017 á þessu ári. Það sem af er þessu ári hafa þingfundadagar því samtals verið 58.
Þetta eru öllu færri þingfundardagar en árin á undan sem hafa verið á bilinu 120 til 169 daga á ári. Skýrist fjöldinn af öllu leyti af löngu sumarfríi og kosningunum í haust, en boðað var til kosninga skömmu eftir sumarfrí. Því skal þó halda til haga að störf þingmanna einskorðast ekki við þingfundi en nefndarstörf gegna mikilvægu hlutverki.
Ef Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ná að mynda ríkisstjórn munu þingfundardögum á þessu ári fjölga eitthvað, líklegt er að þing verði kallað saman í næstu viku ef ekki í lok vikunnar, en enn á eftir að afgreiða fjárlög ársins 2018.