Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra var í dag kjörin formaður Bjartrar framtíðar, tekur hún við formennskunni af Óttari Proppé heilbrigðisráðherra sem sagði af sér í kjölfar nýafstaðinna Alþingiskosninga þar sem flokkur beið afhroð og féll af þingi. Björt var sú eina sem sóttist eftir embættinu.
Björt var kjörin formaður á fundi flokksins á Hótel Cabin í dag. Kosið var rafrænt. Nichole Leigh Mosty, Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir og Ágúst Már Garðarsson bjóða sig fram til stjórnarformanns flokksins, lýkur þeirri kosningu kl.15 í dag.