Fer yfir mistök lögreglu og dómstóla – Árni Gils var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps
„Ég ætla að segja frá þessu ótrúlega máli sem henti mig og son minn í marsmánuði á þessu ári.“ Á þessum orðum hefst heimildarmyndin „Fall Risans – rangar sakargiftir“ sem Hjalti Úrsus Árnason hefur sent frá sér ummál sonar síns, Árna Gils Hjaltasonar.
Árni var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í byrjun ágúst fyrir tilraun til manndráps. Hin meinta árás átti sér stað í mars en síðan þá hefur Árna verið haldið í gæsluvarðhaldi. Í viðtal við DV í morgun fer Árni yfir líðan sína og ýmsa þætti málsins þar sem hann telur rannsókn lögreglu ábótavant.
„Það er verið að fremja á mér réttarmorð og öllum er sama. Sekt mín virðist hafa verið ákveðin á staðnum og ég fæ ekki sanngjarna málsmeðferð. Ég er dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að verjast hnífaárás fíkils sem ég hef aldrei séð áður. Aðalsönnunargagnið finnst ekki, framburður vitna breytist eftir hentisemi og röksemdir dómsins ganga ekki upp,” sagði Árni meðal annars í viðtalinu.
Í heimildarmyndinni sem faðir hans, Hjalti Úrsus, hefur nú frumsýnt er farið dýpra ofan í málið og marga einkennilega þætti rannsóknarinnar. Þar fjallar hann stuttlega um fortíð Árna sem missti fótanna varðandi neyslu áfengis og annarra vímuefna en hafði verið edrú í fimm mánuði þegar hin meinta árás átti sér stað. „Meðferð lögreglu á Árna er til skammar. Það er búið að ákveða að hann sé sekur og málið ekki rannsakað sem skyldi. Ég er ekki í nokkrum vafa að sonur minn situr saklaus í fangelsi. Sökinni var klínt á hann,“ segir Hjalti.
Þá er hann ómyrkur í máli varðandi meðferð héraðsdóms á málinu. „Þegar einstaklingar eru sakaðir um alvarlegan glæp, eins og Árni sonur minn, þá er héraðsdómur nánast undantekningalaust fjölskipaður. Lögmaður okkar fór fram á það í þessu máli en við því var ekki og því sat Arngrímur Ísberg einn sem dómari. Niðurstaða hans heldur ekki vatni og það er meðal annars það sem myndin fjallar um,“ segir Hjalti Úrsus.
Áfrýjun Árna Gils verður tekin fyrir í Hæstarétti mánudaginn 27.nóvember næstkomandi.