Í vikunni hefur geisað hávær umræða um áreitni og viðmót sem konur mæta í stjórnmálalífi landsins. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra, blandaði sér í umræðuna í viðtali við morgunútvarp RÚV. Sagði hún að sér hefði alltaf liðið eins og gesti í heimi karla í stjórnmálum. Lýsti hún einkennilegu atviki eftir að hún tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins. „Þá pantaði hjá mér viðtal ungur strákur úr ungliðahreyfingu flokksins sem ég tilheyri og settist á móti mér og vildi ræða það við mig að ég þyrfti að átta mig á því hversu langt ég gæti farið,“ sagði Hanna Birna. Dró hún í efa að pilturinn hefði tekið slíkt samtal við 45 ára gamlan karl.