Tvær 15 ára stúlkur fundust rétt fyrir klukkan átta í gær meðvitundarlausar á tröppum í miðborg Reykjavíkur í gær. Grunur leikur á því að þær hefi innbyrt fíkniefnið MDMA. Stúlkunnar voru fluttar á gjörgæsludeild Landspítalans.
Mbl.is greinir frá þessu. Önnur stúlkan er sögð vera að koma til meðan hin er enn í öndunarvél. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að það sé ekki algengt að svo ung börn finnist meðvitundarlaus vegna fíkniefnaneyslu.
„Þessir krakkar eru oft að taka inn eitthvað sem þau vita ekkert hvað er eða hversu sterkt það er. Þetta er framleitt einhvers staðar hjá mönnum úti í bæ eða úti í löndum, og sem hafa ekki endilega hundsvit á hvort þeir eru að blanda þetta sterkt eða dauft. Síðan taka þessir krakkar þetta inn og svo er það búið eftir það,“ hefur mbl.is eftir Guðmundi.