Saksóknari í máli ákæruvaldsins gegn Sveini Gesti Tryggvasyni fer fram á að hann verði dæmdur í fjögurra til fimm ára fangelsi vegna málsins. Þá verði honum gert að greiða samtals 54 milljónir króna í bætur.
Þetta kemur fram á mbl.is en aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sveinn Gestur var ákærður fyrir stórfellda líkamsárás en í tengslum við andlát Arnars Jónssonar Aspar í júnímánuði. Unnusta Arnars fer fram á að Sveinn greiði henni tæpar 22 milljónir króna í miska- og skaðabætur og þá er farið fram á að hann greiði ungri dóttur þeirra 18 milljónir króna. Foreldrar Arnars fara svo fram á níu milljónir króna í miskabætur og unglingsdóttur Arnars fer fram á fimm milljóna króna miskabætur.