fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Málfríður dæmd í Danmörku: „Hikaði ekki í eina sekúndu þegar hann bað mig um þetta“

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 23. nóvember 2017 15:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómstóll í Holbæk í Danmörku hefur dæmt 43 ára íslenska konu, Málfríði Þorleifsdóttur, í sex mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Frá þessu greinir fréttavefur SN í Danmörku.

Málfríður var ákærð ásamt fjórum öðrum fyrir framleiðslu og sölu á kannabisolíu í lækningaskyni. Fjallað var um mál hennar í fjölmiðlum hér á landi í byrjun mánaðarins.

Hefðbundnar leiðir dugðu ekki

Í samtali við Morgunblaðið þann 1. nóvember greindi Málfríður frá því að faðir hennar hefði greinst með krabbamein í maga og vélinda í febrúar árið 2014. Hefðbundnar leiðir hefðu ekki dugað til að slá á verki hans. Þar sem að Málfríður var búsett í Danmörku en faðir hennar á Íslandi reyndist það auðveldara fyrir hana að útvega kannabisolíu.

Hikaði ekki í eina sekúndu

„Mér fannst virkilega erfitt að vera beðin um að gera eitthvað ólöglegt, en á sama tíma hikaði ég ekki eina sekúndu þegar hann bað mig um þetta; ég hefði gert hvað sem er til að láta honum líða betur,“ sagði Málfríður og bætti við að í kjölfarið hafi hún lesið sér til um áhrif kannabisolíu á líðan krabbameinssjúklinga. Í tilviki föður hennar hafi olían verið það eina sem gerði seinustu ævidaga hans bærilegri en hann lést síðla árs 2014.

Claus „Moffe“ Nielsen, maðurinn sem seldi Málfríði olíuna var einn af þeim fjórum sem voru einnig fyrir rétti vegna málsins en Claus hóf framleiðslu á kannabispolíu eftir að hafa sjálfur verið í þeim sporum að horfa upp á dóttur sína berjast við krabbamein. Claus, sem er 46 ára, var dæmdur í eins árs fangelsi. Hinir sakborningarnir voru dæmdir í fimm til sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, Málfríður þar á meðal.

Framleiddu kannabissúkkulaði

Eftir að Málfríður komst í kynni við Claus hófu þau tvö framleiðslu og sölu á svokölluðu kannabissúkkulaði til sjúklinga. Voru þau í kjölfarið handtekin í september 2016 og ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot ásamt þremur öðrum einstaklingum.

Málið vakti upp miklar umræður í Danmörku um kannabis í lækningaskyni. Réttarhöldin hófust þann 23.október síðastliðinn en fyrrum viðskiptavinir Claus og Málfríðar voru meðal þeirra sem mættu fyrir dóminn og vitnuðu um jákvæð áhrif olíunnar.

Ekki í hagnaðarskyni

Málfríður kvaðst í viðtalinu við Morgunblaðið sjálf hafa komið aðallega að framleiðslu súkkulaðisins en ekki að sölu, og tók jafnframt fram að það hafi ekki verið í hagnaðarskyni heldur hafi hún fyrst og fremst viljað hjálpa fólki. Viðskiptavinirnir hafi aðallega verið krabbameinssjúklingar auk einstaklinga sem glíma við MS og gigt og í sumum tilfellum var verið að kaupa súkkulaðið handa börnum sem glímdu við erfið veikindi.

Hún kvaðst jafnframt eiga von á því að fá dóm en gerði þó ekki ráð fyrir að hann yrði þungur. „Ég braut lögin upphaflega fyrir pabba minn, síðan til að hjálpa öðrum og ég er viss um að þetta endi allt saman vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala