fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Kári hvetur Bjarna, Katrínu og Sigurð til að vera ekki eins og hann var: „Verið ekki drullusokkar“

„Látið mig vita gott fólk, það er vond tilfinning að hafa verið lélegt foreldri“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. nóvember 2017 09:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar hugurinn leitar til þess tíma þegar börnin mín voru lítil, sem hann gerir oftar með ári hverju, drúpi ég gjarnan höfði, augun vísa til jarðar og sjá þá ekki drulluga sokka, drullusokka, á fótum mér heldur fætur ótrúlegs drullusokks í skónum mínum.“

Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Tíminn er grimmur

Þar skrifar Kári heilræði til Katrínar Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar sem reyna nú eftir fremsta megni að mynda ríkisstjórn. Kári hvetur þau til að hlú að börnum þessa lands í þeim stjórnarsáttmála sem nú er unnið að.

Kári skrifar af biturri reynslu, að eigin sögn, og segir hann í grein sinni að það sé stundum erfitt að horfa til baka og þurfa að sætta sig við sviðna jörð.

„Minn fortíðardjöfull á rætur sínar í því hvernig ég brást börnunum mínum þegar þau voru lítil“

„Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir sjálfshjálparbækur, tólf þrepa prógrömm, alla hugleiðslu heimsins og jóga og lífrænt ræktaða hollustu þá var maður bara það sem maður var og því breytir ekkert sem maður gerir í dag. Tíminn er grimmur og línulegur, leyfir manni ekki að breyta því sem orðið er,“ segir Kári sem útskýrir svo nánar hvað hann á við:

Brást börnum sínum

„Minn fortíðardjöfull á rætur sínar í því hvernig ég brást börnunum mínum þegar þau voru lítil, átti engan tíma handa þeim, eyddi honum öllum í að þjóna sjúklegum metnaði vísindamanns sem stóð í þeirri trú að það eina sem skipti raunverulega máli væri að sýna heiminum að hann væri sniðugri en allir aðrir, án tillits til þess hvort hann væri það eða ekki.“

Kári segir að sá maður sem vanrækir börn sín sé „hvílíkur drullusokkur“ og skiptir þá engu hver ástæðan er. „Sá maður sem gerir það til þess að þjóna hégómlegum metnaði sínum er glæpamaður sem enginn ætti að veita uppreist æru og enginn upplýstur aðili myndi veita uppreist æru nema kannski dómsmálaráðuneyti lýðveldis á lítilli eyju í Norður-Atlantshafi. Það er engin skylda foreldra ríkari eða göfugri en sú að hlúa að börnum sínum, allt annað bliknar hjá henni, verður að hjómi. Það er líka engin skylda samfélags ríkari eða göfugri en sú að hlúa að börnum sínum, allt annað bliknar hjá henni, verður að hjómi.“

Hlúið að börnunum

Kári segir að þess vegna hvetji hann Bjarna, Katrínu og Sigurð Inga til að taka skref aftur á bak og spyrja hvað þyrfti að vera í nýjum stjórnarsáttmála til að tryggja eins vel og mögulegt er að þau gætu horft til baka og sagt að þótt allt annað hefði farið til fjandans þá hefðu þau hlúð að börnum þessa lands fyrst og fremst eins og vera ber.

„Það er skylda ykkar að svara þessari spurningu áður en þið snúið ykkur að öðru.“

Hagsmunir barna í forgangi

Kári segir að hagsmunir barnanna hljóti alltaf að vera í forgangi og þeim megi aldrei fórna fyrir eitthvað annað. Fulltrúar flestra stjórnmálaflokka á Íslandi virðist sammála því að það væri æskilegt og markmið í sjálfu sér að allir þegnar þessa lands byrji sitt líf með jöfn tækifæri.

Kári bendir í lok greinarinnar á það að nauðsynlegt sé fyrir íslenskt samfélag að mennta þjóðina til að skilja nútíma vísindi. Það gerum við fyrst og fremst með því að hlúa að menntun barna og unglinga alla leið frá leikskólum og upp að stúdentsprófi og síðan með því að styrkja kennslu í einum háskóla sem gerir miklar kröfur til nemenda. Einn þáttur, mikilvægur, í þeirri aðhlynningu sé að bæta kjör kennara til muna.

Ber skylda til að hlúa að barninu

„Ef við tökum nú öll börn og unglinga á Íslandi og búum til úr þeim samnefnara sem við köllum Barn þá má leiða að því rök að ríkisstjórnin beri svipaða ábyrgð á því og faðir og Alþingi svipaða móður. Þessar stofnanir tvær verða að gera sér grein fyrir því að þeim ber skylda til þess að hlúa að Barninu áður en þær fara að sinna öðrum skyldum. Þær mega ekki fórna einni máltíð barnsins fyrir hégóma eins og gat í gegnum fjall eða breikkun þjóðvega eða skattaafslátt fyrir atvinnugrein eða sendiráð á Indlandi. Þær mega ekki fórna því að lesa fyrir barnið eða hjálpa því með heimavinnu eða að leika við það til þess eins að sýna heiminum að þær aðhyllist göfuga pólitíska fílósófíu. Allt annað verður að víkja fyrir hagsmunum Barnsins, það á það skilið án tillits til alls annars og svo er það líka framtíð þessarar þjóðar,“ segir Kári sem endar greinina á þessum orðum:

„Látið mig vita gott fólk, það er vond tilfinning að hafa verið lélegt foreldri. Gangið úr skugga um að þið rísið ekki upp úr ráðherrastólum með hana í hjarta ykkar. Sorgin sem fylgir því er of þungbær. Fyrsti kapítulinn í stjórnarsáttmála ykkar ætti að fjalla um byltingarkenndar umbætur í íslensku skólakerfi, í leikskólum, í grunnskólum og framhaldsskólum af öllum gerðum. Ekki gleyma þessu vegna metnaðar á öðrum sviðum. Það væri einfaldlega of ljótt. Verið ekki drullusokkar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga