„Hún er á bráðalista en það eru fjórtán á undan henni. Það er ágætlega hugsað um hana og starfsfólkið gerir sitt besta. Hún hefur það þokkalegt. Við vonum það besta en það er sláandi að þurfa að bíða svo lengi.“
Þetta segir Svava Loftsdóttir í Morgunblaðinu í dag. Svava er dóttir níræðrar konu sem fótbrotnaði aðfaranótt föstudags í síðustu viku en síðan þá hefur hún legið inni á bráðadeild Landspítalans og beðið eftir að komast í aðgerð. Fótbrotið er því ómeðhöndlað en móðir Svövu var sett í gifs frá nára og niður úr til að draga úr kvölum.
Svava segir við Morgunblaðið að biðtíminn sé ekki boðlegur en fjórtán voru á undan henni á biðlista í gærdag. Vonast var til þess að hún kæmist í aðgerð í dag, sem yrði þá rúmum þremur sólarhringum eftir slysið.
Að sögn Svövu er þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem móðir hennar fótbrotnar en í fyrra skiptið þurfti hún einnig að bíða lengi.
Morgunblaðið ræðir við Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, aðstoðarmann forstjóra Landspítalans, sem segir að álag hafi verið á bæklunarskurðdeild síðustu daga vegna tíðra slysa. Það skýri hvers vegna fólk hefur þurft að bíða eftir að komast í aðgerð. Anna segir að spítalinn vilji veita betri þjónustu en stundum myndist álagspunktar sem erfitt er að eiga við.