Tími villikattanna rennur brátt upp, en frægt er þegar Jóhanna Sigurðardóttir líkti á sínum tíma samstarfsfólki sínu í ríkisstjórn, Vinstri grænum, við villiketti sem þyrfti að smala. Víst er að nóg er af villiköttum í pólitíkinni og telja má að þeir verði æði fyrirferðarmiklir innan Vinstri grænna verði af ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samkvæmt Vísindavef Háskólans er slíkum köttum (Felis silvestris silvestris) „oftast haldið niðri af opinberum aðilum þar sem þeim fylgir mikið ónæði og einnig nokkur smithætta. Tilkynningar um ónæði af völdum villikatta hafa komið víða af landinu, svo sem frá Ísafirði, öllum bæjarfélögum höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesjum og Vestmannaeyjum.“
Þá vitum við það …