fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Össur les í ákvörðun Brynjars að hætta á Facebook: Kom skipun frá Bjarna?

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 14. nóvember 2017 14:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, veltir því fyrir sér hvort eitthvað liggi að baki þeirri ákvörðun Brynjars Níelssonar að hætta á Facebook.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Eins og DV greindi frá í morgun hefur Brynjar, nokkuð óvænt, tekið þá ákvörðun að hætta á Facebook. Hingað til hefur Brynjar verið nokkuð virkur á Facebook og því kom ákvörðunin mörgum á óvart.

Einhverjir hafa þó velt tímasetningunni fyrir sér en Brynjar tilkynnir ákvörðunin aðeins sólarhring eftir að tilkynnt var að þingflokkur VG hefði samþykkt að ganga til viðræðna við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn um myndun ríkisstjórnar.

Össur segir að nú sé búið að skrúfa fyrir Brynjar á Facebook.

„Bjarni leggur með því sitt af mörkum til að slökkva eldana sem nú loga í baklandi Katrínar. Uppreisnin, sem braust fram gegn henni með fordæmalausri ályktun Ungra VG-ara gegn samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, verður ekki bæld meðan Brynjar leikur lausum hala á Facebook og hellir olíu á alla elda vinstri manna sem hann kemst nálægt,“ segir Össur sem bætir við að Bjarni sýni því „einbeittan samstarfsvilja með því að skrúfa fyrir vin sinn Brynjar.“

„Það er mikil fórn því Brynjar hefur verið sá sem segir upphátt það sem Sjálfstæðisflokkurinn hugsar – en þorir ekki að segja. Á bak við þetta kann líka að vaka sú hugsun að gera Brynjar „stueren“ á nýjan leik og taka hann fram fyrir Sigríði Andersen þegar skipað verður í stól dómsmálaráðherra,“ segir Össur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“
Fréttir
Í gær

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur
Fréttir
Í gær

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Í gær

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips
Fréttir
Í gær

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband