Samkvæmt fyrstu tölum alþingiskosninganna í Suðurkjördæmi vinna Flokkur Fólksins og Miðflokkurinn mikla sigra og ná báðir inn manni. Samvæmt fyrstu tölum bæta Framsóknarmenn einnig við sig manni en Sjáflstæðismenn tapa einum. Vinstri Grænir og Samfylkingin fá sitt hvoran þingmanninn en aðrir ná ekki inn.
Ef þetta yrðu úrslit kosninganna myndu falla af þingi Jóna Sólveig Elínardóttir þingmaður Viðreisnar, Smári McCarthy þingmaður Pírata og Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti alþingis.
7909 atkvæði hafa verið talin.
Björt Framtíð er með 0,7 %
Dögun er með 0,3%
Flokkur Fólksins er með 10,2%
Framsóknarflokkurinn er með 18,3%
Miðflokkurinn er með 13,8%
Píratar eru með 7,1%
Samfylkingin er með 9,9%
Sjálfstæðisflokkurinn er með 25,2%
Viðreisn er með 2,8%
Vinstri Grænir eru með 11,7%