Er dómsdagur runninn upp? Af hverju er svona dimmt? Þetta er meðal þess sem margir Svíar spurðu að á samfélagsmiðlum nú í morgun. Um klukkustund eftir sólarupprás var myrkrið slíkt í Stokkhólmi að halda mátti að nótt væri.
Aftonbladet og Expressen voru ekki lengi að taka við sér og voru með beinar útsendingar frá „þessu dularfulla fyrirbrigði“ og leituðu skýringa á þessu undarlega ástandi. Anna Belking, veðurfræðingur hjá sænsku veðurstofunni, sagði í samtali við Expressen að skýin væru svo þétt að sólarljósið nái ekki í gegnum þau.
Ian Engblom, veðurfræðingur, sagði í samtali við Aftonbladet að líklega sé um sama ástand að ræða og var í Lundúnum í gær en þá varð himininn þar gulur af völdum fellibylsins Ophelia. Það sem veldur er að Ophelia ber með sér agnir frá skógareldum í sunnanverðri Evrópu og þær þétta skýin og valda meira myrkri eftir því sem Engblom sagði.
Hann sagði þó að ekki væri fullvíst að Ophelia ætti hér hlut að máli og að veðufræðingar væru á fullu að rannsaka málið. Hann lagði þó áherslu á að fólk þurfi ekki að óttast en megi búast við að það verði dimmt aftur í dag þegar birtu ætti að njóta.