fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

16 ára piltur skotinn til bana í Kaupmannahöfn – Líkamsleifar kornabarns fundust í garði við fjölbýlishús

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 17. október 2017 06:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

16 ára piltur var skotinn til bana á Ragnhildgade á Austurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Lögreglunni var tilkynnt um skothríð á svæðinu klukkan 21.05 og skömmu síðar fannst pilturinn í bakgarði húss við götuna. Læknir úrskurðaði hann látinn á vettvangi.

Lögreglan hefur ekki viljað segja mikið um málið annað en að pilturinn hafi verið skotinn til bana og að hann hafi verið skotinn mörgum skotum. Lögreglan hefur hvatt vitni að skotárásinni til að gefa sig fram sem og vini og kunningja þess látna sem voru með honum í gærkvöldi. Ekki er vitað hvort morðið tengist átökum glæpagengja í Kaupmannahöfn en oft hefur komið til átaka á milli stríðandi glæpagengja undanfarið.

Um klukkan 14 í gær fannst beinagrind af kornabarni í garði við fjölbýlishúsahverfi í Glostrup í Kaupmannahöfn. Það var smiður, sem er að störfum á svæðinu, sem fann beinagrindina og tilkynnti lögreglunni samstundis um málið.

Um er að ræða gróið svæði á milli fjölbýlishúsa, svæði þar sem börn leika sér og íbúar fjölbýlishúsanna nota til útivistar og til að grilla. Viðamiklar endurbætur standa yfir á fjölbýlishúsum á svæðinu og því margir iðnaðarmenn að störfum þar.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað á svæðinu í gær og fór umfangsmikill vettvangsrannsókn fram. Hlé var gert á störfum lögreglu um klukkan 19 en aftur verður hafist handa við vettvangsrannsókn nú í morgunsárið.
Ekkert hefur verið látið uppi um málið af hálfu lögreglunnar nema hvað staðfest hefur verið að beinagrind af kornabarni hafi fundist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala