fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Skuggahliðar Costco: Matarsóun og slæm framkoma yfirmanna

Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Costco tjá sig um það sem fram fer bak við luktar dyr verslunarinnar

Kristín Clausen
Föstudaginn 13. október 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að fullyrða að stórverslunin Costco hafi með komu sinni inn á íslenskan markað stuðlað að byltingu varðandi verð og vöruúrval sem ekki sér fyrir endann á. Íslenskir neytendur hafa tekið verslunarrisanum fagnandi og samkeppnisaðilar hafa þurft að aðlagast breyttum veruleika. Saga Costco á Íslandi er á yfirborðinu samfelld sigurganga en undir niðri kraumar reiði starfsfólks varðandi aðstæður á vinnustaðnum. DV hefur undanfarnar vikur fengið ábendingar frá starfsfólki um ýmsa bresti sem eru í rekstri stórverslunarinnar. Meðal annars um gegndarlausa matarsóun sem starfsmönnum blöskrar og slæma framkomu yfirmanna í garð undirmanna sem stuðlar að gríðarlegri starfsmannaveltu. DV ræddi við nokkra starfsmenn, sem fæstir vildu koma fram undir nafni af ótta við að það myndi skemma fyrir framtíðaratvinnumöguleikum.

Heilu brettunum af mat hent í ruslið

Kerrur standa í röðum á lagernum. Fullar af mat sem er runninn út og verður fargað.
Ónýtt Kerrur standa í röðum á lagernum. Fullar af mat sem er runninn út og verður fargað.

Einn heimildarmaður DV, sem við skulum kalla Arnar, er nýhættur hjá Costco. Hann starfaði í versluninni frá því að hún var opnuð í vor, en sagði nýverið starfi sínu lausu þegar betra starf bauðst. Arnar segir að framkoma yfirmanna sé skelfileg og var það meðal annars ástæða þess að hann leitaði að annarri vinnu. „Þessi breski vinnustaðakúltúr og stéttaskipting er ekki eitthvað sem Íslendingar eru vanir. Undirmenn mega varla líta á eða yrða á yfirmenn. Það skapar hræðilegan anda og almennt myndi ég segja að starfsfólki líði illa í vinnunni,“ segir Arnar. Það sem fór þó einna mest fyrir brjóstið á honum er matarsóun Costco sem hann segir að sé gegndarlaus: „Þetta er viðbjóður. Ég hef aldrei séð svona miklu af mat hent í ruslið. Heilu brettin enda í ruslagáminum á hverjum einasta degi,“ segir Arnar.
Hann tók myndir af lager verslunarinnar, rétt áður en hann hætti, og myndirnar birtast með fréttinni. Með því að sýna almenningi þær vill Arnar opna enn frekar umræðuna um matarsóun.

Lágt verð réttlætir ekki sóun

„Costco hefur gert frábæra hluti fyrir Íslendinga, þegar kemur að því að bjóða upp á vöru á lægra verði, en það réttlætir þó ekki hvernig farið er með mat. Yirmenn verslunarinnar tala ekki um mat, heldur kalla þetta úrgang. Í flestum tilfellum er maturinn í góðu lagi þegar honum er fleygt. Fyrirtækið hefur enga umhverfisstefnu sem heitið getur og að mínu mati eigum við Íslendingar, sem upplýst þjóð, að krefjast þess að erlend stórfyrirtæki, staðsett á Íslandi, fylgi okkar leikreglum,“ segir Arnar.

Hann segir að ekki aðeins sé mat, sem er kominn yfir síðasta söludag, fleygt í ruslagám heldur útlitsgallaðri vöru sem og vöru sem er að nálgast síðasta söludag. Þá má starfsfólk, undir engum kringumstæðum, taka matvöru sem á að fleygja með sér heim. „Costco lækkar ekki verð á vöru sem er að renna út, eins og til dæmis Krónan er farin að gera, heldur einfaldlega losar sig við hana. Þeir hafa heldur ekki fyrir því að flokka úrganginn heldur safna öllu saman í ruslagám. Það er lífrænn úrgangur, gler, gormar og plastumbúðir. Allt endar þetta í einum hrærigraut í ruslagámnum. Það eina sem er flokkað sér er pappi. Hann er pressaður. Stundum eru nokkrir troðfullir gámar fyrir utan verslunina og bíða þess að verða fjarlægðir.“

Virðast skammast sín

Costco hefur fengið mikið lof fyrir ávextina og grænmetið sem fyrirtækið flytur inn. Mikið af grænmetinu selst ekki og hér má sjá grænmeti sem endar í ruslagámum.
Ávextir Costco hefur fengið mikið lof fyrir ávextina og grænmetið sem fyrirtækið flytur inn. Mikið af grænmetinu selst ekki og hér má sjá grænmeti sem endar í ruslagámum.

Arnar segir jafnframt að lyktin í og við gáminn muni seint líða honum úr minni. Stuttu fyrir starfslok sín hafi yfirmenn bannað almennu starfsfólki að fara sjálft með rusl í gáminn. „Þá tók ekki betra við. Þá byrjaði ruslið að safnast upp á lagernum og eftir daginn er lyktin óbærileg. Mér skilst að þeir læsi gámnum núna og aðeins nokkrir einstaklingar hafi lykla að honum. Það er eins og þeir skammist sín fyrir þetta, eða hafi fengið ábendingar um að matarsóun sé ekki í lagi og séu að reyna að fela hana. Kannski hafa komist rottur í þetta. Það kæmi ekki á óvart,“ segir Arnar.

Sem dæmi um stefnu Costco varðandi matvöru segir Arnar: „Ef það sést að eitt til tvö jarðarber eru ónýt í bakkanum þá er honum hent. Það sama gildir um eplin. Ef eitt epli er ónýtt í pokanum þá er öllum pokanum hent. Sömu sögu má segja um allan mat í búðinni. Grænmeti, brauð, osta, kjöt, þurrvöru, sósur og krydd. Öllu er hent þegar neyslutíminn er liðinn.“

Slæm framkoma yfirmanna

Öllum mat er hent saman í eina hít í umbúðunum. Costco flokkar ekki lífrænan úrgang frá umbúðunum.
Bland í poka Öllum mat er hent saman í eina hít í umbúðunum. Costco flokkar ekki lífrænan úrgang frá umbúðunum.

Andrew Meekin er 41 árs Englendingur, upprunalega frá borginni Liverpool, sem flutti til Íslands í janúar á þessu ári. Fyrstu mánuðina vann hann á gistiheimili í Vík í Mýrdal en hóf síðan störf í Costco í byrjun júní. Andrew og tveir aðrir fyrrverandi starfsmenn, sem verða í þessari frétt nefndir Jón og Guðrún, lýsa slæmri framkomu yfirmanna fyrirtækisins gagnvart starfsfólkinu.

Andrew vann á aðildarkortaborðinu þar sem hefur verið mikið álag allt frá opnun. Ef smá lægð kom í umsóknirnar var hann settur í vinnu á búðarkassa, en það hafði hann ekki samþykkt við ráðningu og hafði enga reynslu á því sviði. „Ég vissi ekkert hvað ég var að gera og þurfti ítrekað að ýta á takka til að fá hjálp frá yfirmanni. Þá komu þessir reiðu, bresku yfirmenn og helltu sér yfir mig. Þeir gerðu þetta við marga aðra sem unnu á aðildarkortaborðinu og höfðu enga þjálfun.“ Hann segist hafa fengið litla sem enga aðstoð og að hann hafi þurft að læra á kerfið sjálfur.

Ráðinn á fölskum forsendum

Þetta er viðbjóður. Ég hef aldrei séð svona miklu af mat hent í ruslið

Jón sótti um stjórnunarstöðu hjá Costco í vor, áður en búðin var opnuð. Áður hafði hann unnið sem verslunarstjóri í átta ár og vegna slyss þoldi hann illa líkamlegt erfiði. Hann var ráðinn, án samnings, en var sagt að hann myndi vinna við að taka á móti aðildarumsóknum þar til búðin yrði opnuð. „Daginn sem ég byrjaði að vinna var ég sendur út í vöruhús og fyrstu þrjár vikurnar gerði ég lítið annað en að sópa gólf.“

Jóni var sagt að hann fengi stjórn yfir einni deild búðarinnar síðar og við það sat í einhvern tíma. „Síðan var ráðinn bandarískur maður í stöðuna, með enga reynslu af þjónustustörfum eða mannaforráðum.“ Jóni bauðst að halda áfram sem almennur starfsmaður í vöruhúsinu við að taka á móti vörubrettum en hætti skömmu síðar vegna lélegra launa, líkamlegs erfiðis og slæmrar framkomu yfirmanna gagnvart honum.

Þora ekki að leita sér hjálpar

Viðmælendurnir tala allir um slæma framkomu yfirmanna fyrirtækisins gagnvart þeim og öðru starfsfólki. Sérstaklega átti þetta við breskra og bandarískra yfirmenn sem þau segja að hafi litið niður á undirmenn sína. Guðrún hóf störf rétt fyrir opnun búðarinnar en hætti í ágúst vegna framkomu þeirra. Hún segir álagið hafa verið gríðarlegt þegar búðin var opnuð. „Það var gargað á mann fyrir að hafa mætt mínútu of seint. Ég hef ekki töluna á því hversu margar stelpur, ég sjálf meðtalin, hlupu grátandi inn á salernið út af vanlíðan.“ Hún segir einnig að yfirmennirnir hafi skammað starfsfólkið fyrir framan viðskiptavinina.

Andrew segir sömu sögu. „Starfsfólkið var undir miklu álagi og öskrað var á það fyrir framan búðargestina. Mörgum þeirra var greinilega mjög brugðið. Sumir starfsmenn kiknuðu undan álaginu og hættu.“

Álagið var slíkt að það bitnaði á löglegum hvíldartíma starfsfólksins. Andrew segir: „Þegar mjög mikið var að gera fékk fólk ekki einu sinni pásu. Ég veit að margt fólk á aðildarkortaborðinu var að vinna vel fram yfir vinnutíma sinn en fékk ekki aukalega borgað.“ Guðrún tekur undir það og segir að matartímarnir hafi verið styttir um 15 mínútur og það hafi verið rætt á starfsmannafundi. „Það var skellihlegið að okkur og apað eftir okkur með grínröddu: „Hvað með 15 mínúturnar?“ Þessir bresku yfirmenn sögðu að við værum bara löt.“ Jón segir að starfsfólkið hafi átt rétt á 15 mínútna pásu á morgni og eftirmiðdegi. „En það var ekki alltaf sem maður fékk þær.“

Í Costco er unnið á vöktum en viðmælendurnir segja vaktaskiptinguna mjög óreglulega og handahófskennda. Guðrún var ráðin í fullt starf en vann ekki nema um 75–80 prósent og segist því ekki hafa fengið full laun. Andrew segir að of stuttur tími hafi liðið milli vakta og frídagar hafi verið algerlega handahófskenndir. „Ef ég bað um að fá að taka tvo frídaga í röð þá var öskrað á mig.“

Viðmælendurnir lýsa allir hótunum yfirmannanna og segja að margir hafi ekki þorað að leita aðstoðar, til dæmis frá verkalýðsfélagi. Nokkrir starfsmenn leituðu þó til VR vegna samgöngumálanna en samkvæmt kjarasamningi VR og SA er fyrirtæki skylt að greiða fararkostnað til og frá vinnu ef almenningssamgangna nýtur ekki við. Guðrún segir að yfirmennirnir hafi hlegið þegar starfsmenn báðu um að fá greiddan leigubíl. Andrew segir sömu sögu, yfirmennirnir hafi harðneitað og VR látið þetta viðgangast.

Mynstur í uppsögnum

Um miðjan ágústmánuð var Andrew sagt upp störfum hjá Costco. Ástæðan sem gefin var upp var sú að hann „passaði ekki inn í hópinn“ og „væri með stæla“. Þetta þótti honum skrítnar ástæður en fyrir þann tíma hafði hann margoft hugsað um að hætta vegna þeirrar framkomu sem honum var sýnd af hálfu yfirmannanna. Eftir að hann hætti að vinna hjá fyrirtækinu heyrði hann sömu sögu frá öðrum fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins.

„Allir fara á þriggja mánaða reynslutímabil. Eftir það verður Costco að semja við fólk og þá fær það réttindi og uppsagnarfrest. Ég rakst á íslenska stúlku sem vann í Costco og sagði sömu sögu. Hún hafði verið rekin eftir tvo og hálfan mánuð fyrir sömu sakir. Ég hitti tvo pólska bræður sem höfðu báðir verið reknir eftir svipaðan tíma fyrir sömu sakir. Þú passar ekki inn, þú þykir vera með stæla. Seinna heyrði ég í enn fleira fólki á Facebook.“

Guðrún þekkir þetta einnig vel. „Vinkonu minni var sagt upp og ástæðurnar sem henni voru gefnar voru annars vegar að hún passaði ekki inn í teymið og hins vegar að klæðaburður hennar væri ósæmilegur, það hafi sést of mikið í handleggina og bolurinn hafi verið of fleginn.“

Samgöngumálið útistandandi

Bryndís Guðnadóttir hjá stéttarfélaginu VR segir að nokkrir starfsmenn Costco hafi leitað til þeirra í sumar, sérstaklega varðandi bresku yfirmennina. Samkvæmt svörum sem VR fékk frá fyrirtækinu á að vera búið að taka á þessum málum. Hún segir deiluna um ferðakostnaðinn óleysta. „Það er mjög stórt mál og við erum að vinna í því. Við vorum búin að eiga fund með þeim og þetta var það eina sem var útistandandi. Það er ekkert einfalt hvernig þetta er sett fram í kjarasamningnum.“

Þegar DV leitaði til Costco voru gefin þau svör að verslunin hér heima myndi ekki gefa nein svör um starfsmannamál. Allar fyrirspurnirnar voru áframsendar til höfuðstöðvanna í Bretlandi. Eftir talsverða bið bárust loks þau svör frá Sue Knowles, markaðsstjóra Costco, að fyrirtækið kannaðist ekki við vandamál sem snúa að aðstæðum starfsmanna og kjörum þeirra. Fyrirspurnum varðandi matarsóun var ekki svarað. Samkvæmt heimildum DV innan úr fyrirtækinu virðast vandamálin enn vera til staðar. Í september sögðu til dæmis átta manns upp störfum á einu bretti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu